Myndir mánaðarins Ágúst 2017 tbl. 283 DVD-VOD-hluti | Page 22

The Promise The Promise Enginn getur verið öruggur Þegar Mikael Boghosian fær tækifæri til að hefja nám í læknisfræði í Konst- antínópel grunar hann ekki að því fylgi bæði ástarævintýri og lífshætta. The Promise er mögnuð og áhrifarík ástarsaga sem er byggð inn í þá sannsögu- legu atburði þegar Ottóman-heimsveldið svokallaða riðaði til falls í upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar, sem aftur leiddi af sér ýmis grimmdarverk, m.a. þjóðarmorð á Armenum sem náðu ekki að flýja ofsóknirnar í tíma. Myndinni er leikstýrt af Terry George sem var tilnefndur til Óskarsverðlauna árið 2005 fyrir handrit sitt að myndinni Hotel Rwanda og árið 1995 fyrir handritið að In the Name of the Father, en hann leikstýrði einnig fyrrnefndu myndinni sem fjallaði einmitt um önnur skelfileg þjóðarmorð, þegar hútúar í Rúanda myrtu allt að milljón tútsa árið 1994. Punktar ............................................................................................ HHH 1/2 - R.Ebert.com HHH 1/2 - ReelViews HHH 1/2 - Chicago Sun-Times HHH - Empire HHH - Guardian HHH - Time Out HHH - Entertainm.W. Það vakti mikla athygli í apríl síðast- liðnum að áður en The Promise var frumsýnd höfðu tugir þúsunda gefið henni 1, eða lökustu einkunn á Imdb, þrátt fyrir að það stæðist ekki að þeir hefðu séð hana. Nokkuð ljóst er að þarna var á ferðinni skipulögð ófrægingaherferð, en tyrknesk yfir- völd hafa löngum verið viðkvæm fyrir því að þjóðarmorðunum á Armenum séu gerð skil í máli eða myndum. Um leið vakti þetta auðvitað spurningar um áreiðanleika einkunna sem not- Myndin gerist að mestu í Tyrklandi og í Arm- eníu við upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar. endur Imdb.com gefa myndum. l 133 VOD mín Aðalhlutv.: Oscar Isaac, Charlotte Le Bon og Christian Bale Leikstjórn: Terry George Útgefandi: Myndform Söguleg ástarsaga 25. ágúst Jonah Hill hefur lagt töluvert af undanfarið og er nú að gera sína fyrstu mynd sem leikstjóri, en hún heitir Mid ’90s og er myndin hér fyrir ofan tekin á „settinu“ 12. júlí í Los Angeles. 22 Myndir mánaðarins Á sama tíma var Steven Spielberg í New York að taka upp atriði í nýjustu mynd sinni sem nefnist The Papers en ekki The Post eins og við hér hjá Myndum mánaðarins sögðum í júlíblaðinu. Og á meðan Spielberg var að taka upp sína mynd einhvers staðar í New York var Rebel Wilson í Central Park að leika í fyrsta atriðinu í Isn’t It Romantic eftir Todd Strauss-Schulson.