Myndir mánaðarins Ágúst 2017 tbl. 283 DVD-VOD-hluti | Page 21

April and the Extraordinary World – Young Ones April and the Extraordinary World Hvað ef framtíðin hefði orðið önnur? Eftir að margir fremstu vísindamenn heimsins taka að hverfa sporlaust um 1870 stöðvast öll framþróun uppfinninga sem aftur gjörbreytir framtíðinni. April and the Extraordinary World er frönsk/belgísk/kanadísk teiknimynd og ævin- týri á vísindaskáldlegum grunni og er skemmst frá því að segja að hún hefur fengið frábæra dóma. Sagan hefst árið 1870 þegar Napoleon III heimsækir vísinda- manninn Gustave Franklin til að skoða uppfinningu hans, nýja tegund af ofurher- mönnum. Allt fer hins vegar úrskeiðis við skoðunina og um leið gerist eitthvað sem veldur því að vísinda- og uppfinningafólk tekur að hverfa og um leið stöðvast nánast öll tækniframþróun og uppfinningastarf – sem breytir framtíð Jarðarbúa. Punktar ............................................................................................ HHHHH - Variety HHHHH - N.Y. Times HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - R. Ebert.com HHHH 1/2 - Boston Globe HHHH 1/2 - Verge April and the Extraordinary World er eftir leikstjórana og handrits- höfundana Christian Desmares, Franck Ekinci og Benjamin Legrand, en þeir sóttu grunnhugmyndina í teiknisögur franska rithöfundarins Jacques Tardi um Adèle Blanc-Sec sem lendir í ýmsum óvenjulegum ævintýrum á fyrri hluta 20. aldar. l VOD 105 mín Aðalhlutverk: Marion Cotillard, Philippe Katerine og Jean Rochefort Leikstjórn: Sjá punkta Útg.: Myndform 25. ágúst Ævintýri Myndin gerist að mestu í París árið 1941 þegar April, barnabarn Gustave Franklin, uppgötvar hvað olli hvarfi vísindamanna fortíðar og lendir í framhaldinu í mögnuðum ævintýrum ásamt talandi kettinum Darwin. l Young Ones Biddu fyrir rigningu Í ekki svo fjarlægri framtíð er ómengað vatn orðið dýrmætasta náttúruauð- lindin og sá sem á vatn verður að vernda það með öllum mögulegum ráðum. Young Ones hefur hlotið afar góð ummæli þeirra sem kunna að meta raunhæfar vísindaskáldsögur, þ.e. skáldsögur um framtíðarstöðu mannsins á plánetunni Jörð sem gæti allt eins orðið að veruleika. Hér er sögð saga föður og tveggja barna hans, Jerome og Mary, sem hafa lífsnauðsynlegan aðgang að vatni en vantar meira af því til að rækta jörðina og uppskera matvæli. Um leið og þau þurfa að vernda vatnseign sína fyrir þjófum leita þau því leiða til að ná í meira vatn en til þess þurfa þau nauðsynlega á aðstoð og samvinnu við aðra að halda. Vandamálið er að í þessum framtíðarveruleika er engum hægt að treysta ... Punktar ........................................................................................... HHHH - Playlist HHH 1/2 - Slant HHH 1/2 - N.Y. Times HHH 1/2 - V. Voice Þetta er önnur bíómynd Jakes Paltrow (yngri bróður Gwynneth Paltrow) en þá fyrri, The Good Night, gerði hann árið 2007. Sagan í Young Ones og handritið er einnig eftir hann. l Young Ones var frumsýnd árið 2014 og næsta mynd Nicholas Hoult var svo önnur enn þekktari framtíðarskáldsaga, Mad Max: Fury Road, þar sem vatn var líka af skornum skammti. l VOD 100 mín Aðalhl.: Nicholas Hoult, Kodi Smit-McPhee og Michael Shannon Leikstj.: Jake Paltrow Útgefandi: Myndform Vísindaskáldsaga 25. ágúst Þetta er fyrsta myndin sem þeir Nich- olas Hoult og Kodi Smit-McPhee léku saman í en þeir léku síðan þá Beast og Nightcrawler í X-Men: Apocalypse. l Í vatnslausri veröld er engum að treysta. Myndir mánaðarins 21