Myndir mánaðarins Ágúst 2017 tbl. 283 DVD-VOD-hluti | Page 14
Vikings – Norman
Vikings
Sagan af Ragnari loðbrók – þáttaröð 4, annar hluti
Vikings-þættirnir segja frá hinum sigursæla Ragnari loðbrók og mönnum
hans, en Ragnar telst hafa herjað fyrstur víkinga á England og Frakkland.
Ragnar loðbrók, sonur Sigurðar hrings Danakonungs og tengdasonur Sigurðar
Fáfnisbana, var fæddur á ofanverðri áttundu öld og segir sagan að hann hafi
verið mestur allra víkinga. Af honum fer einnig það orð að enginn hafi verið
snjallari honum í herkænsku og þótt heilu herirnir hafi verið sendir á móti honum
og mönnum hans bæði í Englandi og Frakklandi tókst honum ávallt að blekkja
alla sína óvini, fanga þau verðmæti sem hann sóttist eftir og komast undan. Hér
er um að ræða seinni hluta þáttaraðar fjögur, þ.e. þætti 12 til 20, en fyrri hlutinn,
11 fyrstu þættirnir, kom út í nóvember á síðasta ári.
Punktar ............................................................................................
Vikings-þættirnir hafa hlotið frábæra dóma, eru með 8,7 í einkunn frá 248.200
notendum á Imdb.com og hafa m.a. verið tilnefndir til fjölda Emmy-verðlauna.
l
DVD
VOD
540
mín
Aðalhl.: Travis Fimmel, Clive Standen, Gustaf Skarsgård
Höfundur: Michael Hirst Útgefandi: Myndform
10. ágúst
Víkingar
Vikings-þættirnir njóta mikilla vinsælda enda vel gerðir, dramatískir og spennandi.
Norman
Þetta reddast
Norman er „fixari“ í New York sem hreint og beint reddar hverju því sem
viðskiptavinir hans vilja láta reddast. En getur hann reddað sjálfum sér?
Norman er fimmta mynd verðlaunaleikstjórans Josephs Cedar og sú fyrsta síðan
hann sendi frá sér meistaraverkið Footnote (Hearat Shulayim) sem sópaði til sín
ísraelsku kvikmyndaverðlaununum árið 2012 og var m.a. tilnefnd til Óskarsverð-
launa sem besta erlenda mynd ársins. Hér segir hann okkur hina merku sögu af
Norman Oppenheimer (sem Richard Gere þykir leika stórkostlega), en sá hefur
sérhæft sig í að útvega öðrum það sem þeir vilja. Starfinu fylgir hins vegar sá
ókostur að áður en hann getur sannfært menn um að ráða sig í vinnu þarf hann
að sanna að hann geti í raun reddað málum fyrir þá. Dag einn vingast hann við
stjórnmálamann sem hefur ekki átt sjö daga sæla og þau kynni eiga þremur árum
síðar eftir að breyta lífi beggja til frambúðar – til góðs eða ills fyrir Norman ...
Punktar ............................................................................................
HHHH 1/2 - N.Y. Times HHHH 1/2 - Variety HHHH - Hollywood Reporter
HHHH 1/2 - Rolling Stone HHHH- L.A. Times HHHH - Screen Internat.
Myndin, sem ber undirtitilinn The
Moderate Rise and Tragic Fall of a
New York Fixer, hefur eins og sést á
stjörnugjöfinni hér fyrir ofan hlotið
afar góða dóma margra gagnrýnenda
og er af sumum talin ein af tíu bestu
óháðu bandarísku bíómyndum ársins
2016. Er það ekki síst fyrir einkar gott
handrit leikstjórans Josephs Cedar og
frábæran leik Richards Gere í hlutverki
hins sérstaka Normans sem er sann- Richard Gere leikur Norman Oppenheimer
í þessari snjöllu mynd Josephs Cedar.
arlega ekki allur þar sem hann er séður.
l
VOD
118
mín
Aðalhl.: Richard Gere, Lior Ashkenazi, Michael Sheen
og Steve Buscemi Leikstj.: Joseph Cedar Útg.: Sena
Drama
14
Myndir mánaðarins
10. ágúst