Myndir mánaðarins Ágúst 2017 tbl. 283 DVD-VOD-hluti | Page 13
Our Last Tango – K3
Our Last Tango
Lífið var tangó
Heimildarmynd um argentínska parið Maríu Nieves Rego og Juan Carlos Copes
sem byrjuðu saman á unglingsárum og urðu síðan eftirlæti argentínsku þjóð-
arinnar sem dansarar næstu fimmtíu árin, eða allt þar til sambandi þeirra lauk.
Segja má að þessi merka heimildarmynd Germans Kral, sem er framleidd m.a. af
Wim Wenders, sé marglaga því um leið og hún fjallar um umtalað ástarsamband
tveggja frægustu dansara Argentínu fyrr og síðar og hin bitru sambandsslit þeirra
fimmtíu árum eftir að þau hittust fyrst segir hún um leið frá uppgangi tangódansins
sem þau María og Juan áttu stóran þátt í að gera eins vinsælan og raun ber vitni,
fyrst í heimalandinu og löndunum í kring á sjöunda og áttunda áratug síðustu
aldar og síðan í Evrópu og Bandaríkjunum, ekki síst eftir að þau sömdu og
frumfluttu dansverkið Tango Argentino sem náði miklum vinsældum beggja vegna
Atlantshafsins og var tilnefnt til Tony-verðlauna þegar það var sýnt á Broadway.
Allan tímann var persónulegt samband
þeirra í kastljósi argentínsku slúðurpress-
unnar enda stormasamt í meira lagi ...
Punktar ........................................
HHHH 1/2 - New York Times
HHHH - Hollywood Reporter
HHH - Los Angeles Times
Í myndinni koma fram margir af virtustu
tangódönsurum Argentínu sem endur-
skapa andrúmsloftið í tangóheimi Argen-
tínu á uppgangstímum Maríu og Juans og
setja bæði ástarsögu þeirra, dans og bitur
sambandsslitin í leikrænan búning um
leið og María og Juan segja áhorfendum
sögu sína, hvort frá sinni hlið.
l
VOD
85
mín
Heimildarmynd eftir German Kral
Útgefandi: Myndform
Heimildarmynd
4. ágúst
K3
Alltaf saman – að eilífu
Fjallhressir teiknimyndaþættir um poppsöngkonurnar Kötu, Kylie og Kim
sem í tónleikaferðum sínum um heiminn lenda í ótrúlegustu ævintýrum.
Krökkum á öllum aldri er hér boðið með í tónleikaferð um víða veröld með þeim
Kötu, Kylie og Kim sem saman nefna sig K3. Þær eru æskuvinkonur sem fyrir utan
sönginn og að koma fram á tónleikum slá aldrei hendinni á móti öðrum ævintýrum
sem þeim býðst að taka þátt í á ferðum sínum, hvort sem þau snúast um að góma
fingralanga, berjast við skrímsli eða hjálpa þeim sem minna mega sín í veröldinni.
Þetta er safn númer fjögur í seríunni, þættir 25 til 31.
Punktar ............................................................................................
Þættirnir um þær Kötu, Kylie og Kim eru framleiddir af sama fyrirtæki og gerði
þættina um Mæju býflugu, Vigga víking, Heiðu og Artúr og mínímóana.
l
VOD
95
mín
Teiknimyndir með íslensku tali um K3-sönghópinn
Útgefandi: Myndform
Barnaefni
4. ágúst
Myndir mánaðarins
13