Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 BR-DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 28
It’s Only the End of the World – Faces Places
Síðasta máltíðin
Louis er rithöfundur sem fyrir tólf árum yfirgaf fjölskyldu sína og hefur
síðan verið í litlu sem engu sambandi við hvorki móður sína, eldri bróður né
yngri systur sem man varla eftir honum. Þegar hann birtist skyndilega á
sínu gamla heimili er uppgjör á milli hans og ættingjanna óumflýjanlegt.
Þessi áhrifaríka og margverðlaunaða mynd kanadíska leikstjórans Xaviers Dolan
er byggð á samnefndu leikriti Jeans-Luc Lagarce sem var frumflutt árið 1990. Hér
fara nokkrir af bestu leikurum Frakka á kostum í margslunginni persónusköpun,
en óhætt er að segja að fjölskylda Louis sé ósátt við brotthvarf hans á sínum tíma.
Það sem hún veit hins vegar ekki er að ástæðan fyrir því að Louis ákvað að koma í
heimsókn er að hann er dauðvona og er því kominn til að kveðja í hinsta sinn ...
Punktar ............................................................................................
HHHH - Guardian HHH - Screen International HHH - The Telegraph
Myndin hlaut fimm verðlaun
af sjö tilnefningum til Kanadísku
kvikmyndaverðlaunanna árið 2017,
þ.e. fyrir handritið, leikstjórnina,
kvikmyndatökuna, besta leik í
aukahlutverki karla og sem besta
mynd ársins. Hún var einnig
tilnefnd til sex César-verðlauna og
hlaut þau í þremur flokkum, fyrir
bestu leikstjórn, bestu klippingu og
fyrir besta leik í aðalhlutverki karla.
Þess utan var hún tilnefnd til Gull-
pálmans á kvikmyndahátíðinni í
Cannes 2016 þar sem Xavier Dolan
hlaut dómnefndarverðlaunin fyrir
leikstjórnina.
l
97
VOD
mín
Aðalhlutverk: Gaspard Ulliel, Vincent Cassel, Marion Cotillard
og Léa Seydoux Leikstjórn: Xavier Dolan Útgef.: Myndform
Drama/leikrit
28. september
Louis hefur ekki séð fjölskyldu sína í tólf ár og því
verða fagnaðarfundir með þeim þegar hann lætur
loksins sjá sig. Sú gleði verður þó skammvinn.
Farið um Frakkland
Hin tæplega níræða Agnès Varda, sem á margar af merkustu kvikmyndum
Frakka að baki, og hinn 35 ára gamli ljósmyndari og listamaður JR, tóku sig
til og ferðuðust um heimaland sitt sumarið 2016 á hinum sérútbúna ljós-
myndabíl JR. Úr varð alveg kostuleg heimildarmynd sem allir verða að sjá.
Segja má að Faces Places sé í raun miklu meira en heimildarmynd því hún er um
leið lífssaga fjölda persóna, bæði þeirra sem gerðu hana og þeirra sem þau hitta
fyrir á ferðum sínum. Þessar sögur lifa svo áfram, löngu eftir að myndinni lýkur ...
Punktar ............................................................................................
HHHHH - Boston Globe HHHHH - Wash. Post HHHHH - N.Y. Times
HHHHH - Rolling Stone HHHHH - Guardian HHHHH - Screen
HHHHH - IndieWire HHHH 1/2 - The Wrap HHHH 1/2 - Variety
HHHH 1/2 - R.Ebert.com HHHH 1/2 - H. Reporter HHHH 1/2 - Slant
Faces Places, sem heitir á
frummálinu Visages villages, hefur
eins og sést á stjörnugjöfinni
hér fyrir ofan hlotið toppdóma
gagnrýnenda fyrir utan óteljandi
verðlaun hvar sem hún hefur verið
sýnd á kvikmyndahátíðum.
l
Segja má að um leið og við
kynnumst þeim JR og Agnès Varda
og því einstaka sambandi sem er á
milli þeirra kynnumst við einnig vel
hinum almenna Frakka sem býr í
sveitum landsins og landinu sjálfu.
Einhver orðaði það svo að þegar
myndinni lýkur mun þig langa til að
kaupa þér flugmiða til Frakklands!
l
VOD
94
mín
Höfundar: JR og Agnès Varda Útgefandi: Myndform
Heimildarmynd
28
Myndir mánaðarins
28. september
Í þessari einstöku og bráðskemmtilegu mynd ferðast
þau Agnès Varda, leikstjóri, og ljósmyndarinn JR vítt
og breitt um Frakkland og taka risastórar myndir!