Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 BR-DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 11

Ferdinand Góða nautið Ferdinand Teiknimyndin um stóra, sterka en góðhjartaða nautið Ferdi- nand er frá þeim sömu og gerðu Ísaldar- og Rio-myndirnar og er byggð á þekktustu sögu rithöfundarins Munros Leaf sem gaf hana út árið 1936 með teikningum eftir Robert Lawson. Allt frá því að nautið Ferdinand var kálfur hefur hann verið ólíkur öðrum nautum. Á meðan aðrir kálfar vildu helst stangast á og létu sig dreyma um að komast í nautaatshringinn í Madrid hafði Ferdinand mun meiri áhuga á að njóta náttúrunnar, blómanna og litanna sem umhverfi hans býður upp á, auk þess sem hann getur ekki hugsað sér að gera flugu mein. En örlögin haga því samt svo að Ferdinand er fyrir misskilning sendur til Madridar til að berjast og verður með aðstoð nokkurra félaga sinna að losa sig úr ánauðinni og finna leiðina heim áður en það er orðið of seint ... Ferdinand, sem kemur nú út á DVD og BluRay, er kjörin fjölskyldu- skemmtun, ljúf, fyndin, leiftrandi fjörug og hæfilega spennandi. Ferdinand Punktar .................................................... Teiknimynd DVD 94 mín Íslensk talsetning: Hjörtur Jóhann Jónsson, Sigríður Eyrún Friðriks- dóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Jón Stefán Kristjánsson, Orri Huginn Ágústsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Ævar Þór Benediktsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Steinn Ármann Magnússon, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason o.fl. Leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir Útgefandi: Sena Ferdinand verður gefin út á DVD og BluRay með íslensku og ensku talsetningunni, en á meðal þeirra sem tala fyrir persónurnar á ensku eru þau John Cena, Kate McKinnon, Bobby Cannavale, Peyton Manning, David Tennant, Gabriel Iglesias og Gina Rodriguez. l 6. september Myndir mánaðarins 11