Myndir mánaðarins September 2017 tbl. 284 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 19

Baywatch
Þú verður að vera á verði
Strandverðinum Mitch Buchannon líst nákvæmlega ekkert á nýjan liðsmann teymis síns , Matt Brody , sem skartar tveimur gullverðlaunum en virðist ekki hafa mikið annað til brunns að bera . En þegar þeir Mitch og Matt komast á snoðir um lævísa tilraun hinnar slóttugu Victoriu Leeds til að sölsa undir sig ströndina neyðast þeir til að snúa bökum saman .
Baywatch er eins og flestir vita byggð á feikivinsælum sjónvarpsþáttum sem hófu göngu sína árið 1989 og urðu 292 talsins áður en yfir lauk auk þess að geta af sér ýmsar hliðarafurðir .
Hér er það léttleikinn og húmorinn sem ræður ríkjum en leikstjóri myndarinnar , Seth Gordon , á að baki myndir eins og Four Christmases , Horrible Bosses og Identity Thief . Þeir sem skemmtu sér vel yfir þeim myndum eiga nokkuð örugglega eftir að skemmta sér yfir Baywatch enda rekur þar hver kostuleg uppákoman aðra ...
Baywatch
Gaman / Hasar
VOD
Aðalhlutverk : Dwayne Johnson , Zac Efron , Alexandra Daddario , Priyanka Chopra , Kelly Rohrbach , Ilfenesh Hadera , Jon Bass , Yahya Abdul , Pamela Anderson og David Hasselhoff Leikstjórn : Seth Gordon Útgefendur : SíminnBíó og Vodafone
116 mín
15 . september
Þeir Mitch og Matt þekkjast ekkert í byrjun myndarinnar og það á ýmislegt eftir að koma upp á áður en Mitch samþykkir að Matt sé hæfur til að fara með hið vandasama starf strandvarðarins .
Punktar ....................................................
HHHH - Time Out HHH1 / 2 - L . A . Times HHH - N . Y . Times l Þau David Hasselhoff og Pamela Anderson , sem léku þau Mitch og C . J . í upprunalegu sjónvarpsþáttunum , koma einnig fram í þessari mynd í gestahlutverkum .
l Myndin er að mestu tekin upp við strendur Flórída-ríkis .
l Handritið að myndinni er eftir þá Damian Shannon og Mark Swift , en leikararnir máttu í mörgum tilfellum segja það sem þeir vildu í stað þess að fara eftir handritinu , þ . e . spinna upp orð sín á staðnum .
Strandvarðateymið í Baywatch samanstendur af þeim C . J ., Stephanie og Summer sem þær Kelly Rohrbach , Alexandra Daddario og Ilfenesh Hadera leika og þeim Mitch , Matt og Ronnie sem þeir Dwayne Johnson , Zac Efron og Jon Bass leika .
Veistu svarið ? Eins og kemur fram hér í punktunum þá léku David Hasselhoff og Pamela Anderson þau Mitch og C . J . í upprunalegu Baywatch-þáttunum . En hvaða leikkonur fóru með hlutverk Stephanie og Summer ?
Alexandra Paul og Nicole Eggert .
Það er hin indverskættaða Priyanka Chopra sem leikur Victoriu Leeds , en þar er sannarlega á ferðinni flagð undir fögru skinni .
Myndir mánaðarins 19