Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 VOD og tölvuleikir | Page 16
The Man Who Killed Don Quixote – Maggi mörgæs: Brúðkaupið
Hver dagur er nýtt ævintýri
Aðdáendur leikstjórans Terrys Gilliam hafa fagnað þessari nýjustu mynd
hans sem einni þeirri bestu sem hann hefur gert, eins og Brazil, Time Band-
its, Twelve Monkeys, Fear and Loathing in Las Vegas og The Fisher King.
Eins og alltaf þegar Terry Gilliam er annars vegar kemur atburðarásin í The Man
Who Killed Don Quixote verulega á óvart, en í stuttu máli segir hér frá leikstjóranum
Toby Grisoni sem gerði stutta mynd um Don Kíkóta á skólaárum sínum. Mörgum
árum síðar hittir hann á ný skósmiðinn Javier sem fór með aðalhlutverkið í mynd
hans og hefur síðan sannfærst um að hann sé í raun hinn eini sanni Don Kíkóti ...
Punktar ..................................................................
HHHH 1/2 - Voice HHH 1/2 - R.Ebert.com HHH 1/2 - Chicago Sun-Times
HHH 1/2 - N.Y. Times HHH 1/2 - Rolling Stone HHH 1/2 - L.A. Times
HHH 1/2 - IGN HHH 1/2 - IndieWire HHH 1/2 - Playlist HHH - Time Out
Eins og nafn myndarinnar gefur til
kynna sækir sagan í henni innblást-
urinn í hina frægu sögu Don Kíkóta
eftir Miguel de Cervantes og kannski
rúmlega það enda eru sum atriði
hennar einnig sótt beint í þá sögu.
l
Það eru liðin heil 30 ár síðan Terry
Gilliam fór af stað með framleiðslu
þessarar myndar sem átti upphaflega
að vera með þeim Robin Williams og
John Cleese í aðalhlutverkum. Ýmis-
legt varð þó til að tefja gerð hennar og
er sú áfallasaga talin gott dæmi um
það sem í Hollywood er kallað að
lenda í „development hell“. Þá kostu-
legu sögu má kynna sér á netinu.
l
132
VOD
mín
Aðalhlutv.: Adam Driver, Jonathan Pryce, Stellan Skarsgård
og Olga Kurylenko Leikstjórn: Terry Gilliam Útg.: Myndform
Ævintýri/grín
8. nóvember
Þeir Adam Driver og Jonathan Pryce í
hlutverkum sínum sem þeir Toby Grisoni
og Javier sem bregða sér í gervi Sancho
Panza og hins kostulega Dons Kíkóta.
Maggi mörgæs: Brúðkaupið
Leirbrúðumyndirnar um Magga mörgæs, fjölskyldu hans og vini eftir þá
Otmar Gutmann og Silvio Mazzola, hafa notið mikilla vinsælda allt frá því
þær komu fyrst fram árið 1990. Flestar teiknimyndirnar eru um 6 mínútna
langar en sú sem hér kemur út, Brúðkaupið, er 25 mínútur að lengd.
Myndirnar um Magga mörgæs henta afar vel fyrir yngstu
áhorfendurna sem kunna að meta kostulegar uppákom-
urnar og húmorinn sem svífur yfir öllu því sem hann
tekur sér fyrir hendur á ísbreiðunni á Suðurskautinu þar
sem hann býr. Í þessari mynd er hin hversdagslega tilvera
Magga og fjölskyldu hans rofin þegar þau eru boðin í
brúðkaup. Í gang fer undirbúningur sem tekur á sig hinar
spaugilegustu myndir enda er að mörgu að hyggja áður
en mætt er á slíkan viðburð. En svo kemur dálítið upp á ...
VOD
25
mín
Leirbrúðumynd um Magga mörgæs, fjölskyldu hans og vini
Útgefandi: Myndform
Barnaefni
16
Myndir mánaðarins
8. nóvember