Myndir mánaðarins MM Maí 2019 DVD BR VOD Tleikir | Page 11

The Children Act – Alvinnn!!! og íkornarnir Allir þurfa að taka ákvarðanir Óskarsverðlaunaleikkonan Emma Thompson sýnir hér snilldarleik í hlut- verki hæstaréttardómarans Fionu Maye sem fær til úrskurðar mál þar sem læknar vilja veita ungum manni blóðgjöf til að freista þess að bjarga lífi hans, gegn samþykki hans sjálfs og foreldra hans af trúarlegum ástæðum. Í Bretlandi eru í gildi lög, The Children Act, sem segja fyrir um að velferð barna skuli ávallt höfð að leiðarljósi í dómsmálum sem þau snerta og skipti meira máli en vilji foreldra þeirra eða forráðamanna. Málin vandast hins vegar verulega þegar barnið sjálft er á öndverðri skoðun eins og í tilfelli hins 17 ára gamli Adams sem þjáist af hvítblæði en vill alls ekki þiggja blóðskipti þótt þau gætu bjargað lífi hans. Það gerir málið enn erfiðara fyrir Fionu að hún glímir sjálf við alvarlega tilvistarkreppu á heimavelli þar sem hjónaband hennar og eiginmannsins Jacks riðar til falls ... Punktar .................................................................. HHHHH - Film Threat HHHH 1/2 - R.Ebert.com HHHH - Screen Intern. HHHH - CineVue HHHH - Variety HHH 1/2 - E.W. HHH 1/2 - IndieWire Myndin er byggð á samnefndri verðlaunabók breska rithöfundarins Ians McEwan sem kom út 2014, en Ian skrifaði einnig handrit myndarinnar. l Leikstjórinn Richard Eyre á margar góðar myndir að baki og má þar nefna verðlaunamyndirnar Iris, Notes on a Scandal og The Dresser. l 105 VOD mín Þótt sagan í myndinni sé ekki byggð á sannri sögu sækir hún innblásturinn í raunveruleg dómsmál þar sem blóð- gjöf var hafnað af trúarástæðum. l Aðalhl.: Emma Thompson, Stanley Tucci, Fionn Whitehead og Ben Chaplin Leikstjórn: Richard Eyre Útgefandi: Myndform 3. maí Drama Emma Thompson og Stanley Tucci leika hjónin Fionu og Jack í The Children Act. Alvinnn!!! og íkornarnir Stórskemmtileg teiknimyndasyrpa um ævintýri sex eldfjörugra íkornabarna sem eru stöðugt að lenda í alls konar ævintýrum og óvæntum uppákomum, uppeldisföður þeirra, Davíð, oftar en ekki til mikillar mæðu. Þessir þættir komu fyrst út í mars 2015 og slógu þegar í gegn á bandarísku og frönsku Nickelodeon-sjónvarpsstöðvunum. Í framhaldinu hafa þeir verið sýndir víða og alls staðar verið vel tekið. Hér segir frá hinum ókvænta Davíð sem tekið hefur að sér að ala upp sex íkornakrakka, þrjá stráka og þrjár stelpur. Það gengur því að sjálfsögðu mikið á á heimilinu því íkornakrakkarnir eru hugmyndaríkir með eindæmum og óhræddir við að feta nýjar slóðir í hverju því sem þeir taka sér fyrir hendur. En stundum þrýtur Davíð þolinmæðina og þegar það gerist kallar hann yfir sig: „ALVINNN!!!“ VOD 88 mín Teiknimynd með íslensku tali um sex íkornakrakka og ævintýri þeirra Útgefandi: Myndform Barnaefni 3. maí Myndir mánaðarins 11