Myndir mánaðarins MM Maí 2019 DVD BR VOD Tleikir | Page 10
Dragged Across Concrete – Miss Bala
Stigið yfir strikið
Þegar lögreglumennirnir Brett Ridgeman og Anthony Lurasetti (Mel Gibson
og Vince Vaughn) eru sendir í sex mánaða launalaust „leyfi“ fyrir að hafa
gengið fullharkalega fram við síðustu handtöku ákveða þeir að gerast sjálfir
ræningjar, enda hafa þeir bæði kunnáttuna og þekkinguna sem til þarf!
Hér er okkur sögð mögnuð saga af tveimur lögreglumönnum í ónefndri borg
sem lenda í miklum fjölmiðlastormi með tilheyrandi samfélagsmiðlaumræðu
þegar myndband af síðustu handtöku þeirra fer á flug, en það þykir sýna þá sem
algera fanta. Í kjölfarið eru þeir sendir í launalaust leyfi en á því hafa þeir engin
efni, sérstaklega ekki sá eldri þeirra, Brett. Hann ákveður því að nýta sér þekkingu
sína á undirheimunum til að komast yfir góss glæpamanna og svo fer að sá yngri,
Anthony, gengur í lið með honum. Hvorugur gerir sér grein fyrir afleiðingunum ...
Punktar ..................................................................
HHHH 1/2 - E.W. HHHH 1/2 - Slant HHHH - IndieWire HHHH - Guardian
HHHH - CineVue HHH 1/2 - Variety HHH 1/2 - R.Ebert HHH 1/2 - L.A. Times
Dragged Across Concrete er þriðja
mynd óháða leikstjórans og hand-
ritshöfundarins S. Craigs Zahler en
þær fyrri eru hinar fantagóðu Bone
Tomahawk og Brawl in Cell Block 99.
Fyrir utan Mel Gibson eru nánast allir
leikarar myndarinnar og aðstand-
endur þeir sömu og komu að gerð
Brawl in Cell Block 99.
Auk leikaranna sem nefndir eru hér í
Þegar lögreglumennirnir Anthony og
kreditlistanum t.v. fara þau Thomas
Brett
(Vince Vaughn og Mel Gibson) eru
Kretschmann, Udo Kier, Laurie Holden,
sendir
í launalaust leyfi ákveða þeir að
Tory Kittles og Michael Jai White með
nota þekkingu sína í eigin ágóðaskyni.
veigamikil hlutverk í myndinni.
l
l
159
VOD
mín
l
Aðalhl.: Mel Gibson, Vince Vaughn, Jennifer Carpenter
og Don Johnson Leikstj.: S. Craig Zahler Útg.: Sena
2. maí
Spenna/sakamál
Gerðu hið rétta
Gloria er bandarísk kona sem í heimsókn
hjá vinkonu sinni í Mexíkó er rænt af
þarlendum eiturlyfja- og smyglhring, Las
Estrellas, og neydd til að vinna fyrir þá.
Hér er á ferðinni hörkuspennandi mynd frá
upphafi til enda sem er lauslega byggð á
sönnum en alveg ótrúlegum atburðum.
VOD
Spenna/hasar
104
mín
2. maí
Gina Rodriguez leikur hér förðunarmeistarann
Gloriu sem fer til Mexíkó að hitta vinkonu sína
Suzu sem hefur skráð sig í fegurðarsamkeppni
og þiggur því með þökkum þá aðstoð sem
Gloria getur veitt henni. Málin taka hins vegar
óvænta stefnu þegar þær fara saman út að
skemmta sér og lenda þá í árás Las Estrellas-
glæpahópsins á skemmtistaðinn sem þær eru
staddar á. Þar með breytist líf Gloriu að eilífu ...
Punktar ...............................
HHH 1/2 - S.F. Chronicle HHH - ReelViews
HHH - N.Y. Post HHH - Chicago Tribune
Myndin er endurgerð samnefndrar myndar
mexíkóska leikstjórans Gerardo Naranjo sem
var frumsýnd 2011 og varð ein vinsælasta
mynd ársins í þarlendum kvikmyndahúsum.
l
Gina Rodriguez og Ismael Cruz Córdova
í hlutverkum sínum í myndinni.
10
Myndir mánaðarins
Aðalhlutverk: Gina Rodriguez, Ismael Cruz Córdova, Matt
Lauria, Ricardo Abarca, Anthony Mackie og Thomas Dekker
Leikstjórn: Catherine Hardwicke Útgefandi: Sena
Kate Hudson varð fertug 19. apríl og bauð af
því tilefni vinum og vandafólki í kaffi og með
því á heimili sínu og auðvitað lét ein besta
vinkonan, Gwyneth Paltrow, sig ekki vanta.