Extremely Wicked, Shockingly Evil and Vile
Útlitið segir ekkert
Ted Bundy var afar geðfelldur maður sem átti auðvelt með að heilla konur
með nærveru sinni og lágstemmdri framkomu. Útlitið skemmdi heldur ekki
fyrir, en hann þótti bæði myndarlegur og kynþokkafullur. En undir þessu
yfirborði bjó einhver allra grimmasti fjöldamorðingi í sögu Bandaríkjanna
sem að lokum játaði á sig 30 morð en er talinn hafa myrt mun fleiri en það.
Extremely Wicked, Shockingly Evil and Vile
Sannsögulegt
110
mín
Aðalhlutverk: Zac Efron, Lily Collins, Angela Sarafyan, Kaya
Scodelario, Haley Joel Osment og John Malkovich Leikstj.:
Joe Berlinger Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll,
Akureyri og Keflavík, Selfossbíó, Eyjabíó og Ísafjarðarbíó
Frumsýnd 17. maí
Haley Joel Osment, sem sló í gegn ungur að
árum, fyrst sem sonur Forrest Gump í sam-
nefndri mynd og síðan í The Sixth Sense og
fleiri myndum, mætti hress, kátur og 31 árs
á Sundance-kvikmyndahátíðina í vetur.
Extremely Wicked, Shockingly Evil and Vile er byggð á bókinni The Phantom Prince:
My Life with Ted Bundy eftir Elizabeth Kloepfer sem var um tíma unnusta Teds
Bundy og átti lengi vel erfitt með að trúa að hann væri sá fjöldamorðingi sem
hann reyndist þó vera því sjálf hafði hún
allt aðra reynslu af honum og gat ekki
gert sér í hugarlund að undir mjúku yfir-
borðinu byggi allt annar maður en sá
sem hún þekkti. Það er Lily Collins sem
leikur Elizabeth í myndinni og með hlut-
verk Teds Bundy fer Zac Efron sem þykir
sýna þvílíkan snilldarleik sem hinn tvö-
faldi persónuleiki að hann á góða mögu-
leika á að vera tilnefndur til allra helstu
leiklistarverðlauna ársins. Þess utan er
Zac alls ekki ólíkur Ted Bundy í útliti sem
gerir hann enn trúverðugri í hlutverkinu.
Myndinni er leikstýrt af Joe Berlinger sem
hefur verið margverðlaunaður fyrir heim-
ildarmyndir sínar í gegnum árin. Þess má
geta að heiti myndarinnar er sótt í lokaorð
dómarans sem dæmdi Ted Bundy til
dauða í janúar 1980 og lýsti glæpum hans
svo: „Your crimes were extremely wicked,
shockingly evil and vile, and the product
of design to inflict a high degree of pain.“
Þau Josephine Langford og Hero Fiennes sem
fara með aðalhlutverkin í myndinni After hafa
verið á ferð og flugi að undaförnu að kynna
myndina og mættu eins og sjá má hér prúð-
búin á forsýningu hennar í París 21. apríl.
Ted Bundy hélt lengi vel fram sakleysi
sínu og margir sem þekktu hann, þ. á
m. unnustan Elizabeth Kloepfer, trúðu
því alls ekki að hann væri morðingi.
Zac Efron í hlutverki sínu sem Ted.
Lily Collins mætti í þessum flotta kjól frá Elie
Saab á forsýningu myndarinnar Extremely
Wicked, Shockingly Evil and Vile í London 24.
apríl, en hún fer með aðalhlutverkið í henni á
móti Zac Efron sem leikur Ted Bundy.
Myndir mánaðarins
25