The Hustle
Svindl á svindl ofan
Tvær konur, önnur í lágklasssa og hin í háklassa, sem hafa
sérhæft sig í svikum og prettum taka höndum saman um að
svindla hressilega á forríkum mönnum og fá þá til að gefa sér
hluta af auðæfum sínum. Allt gengur upp eins og í sögu þar til
tæknifrömuðurinn og milljarðamæringurinn Thomas stígur inn
í myndina og veldur því að ýmislegt byrjar að fara úrskeiðis.
Það bíða vafalaust margir eftir að sjá þessa gamanmynd leikstjór-
ans Chris Addison en stiklan úr henni hefur slegið í gegn á netinu
enda bráðskemmtileg ein og sér og sýnir vel hversu langt aðal-
persónurnar tvær sem þær Rebel Wilson og Anne Hathaway leika
eru tilbúnar að ganga til að fá sínu fram. En í veröld þar sem tilveran
er byggð á svindli er auðvitað aldrei allt alveg eins og það sýnist.
Myndinni, sem verður frumsýnd 10. maí, er spáð mikilli velgengni í
kvikmyndahúsum og hver veit nema hún eigi eftir að standa uppi
sem einn af vinsælustu grínsmellum ársins 2019.
The Hustle
Gamanmynd
Þótt þær hafi báðar lífsviðurværi sitt af alls konar prettum og svindli
er sá stóri munur á þeim Penny og Josephine að sú fyrrnefnda svindlar
til að hafa í sig og á meðan sú síðarmefnda svindlar til að eiga meira
en hún á. Rebel Wilson og Anne Hathaway í hlutverkum sínum.
94
mín
Aðalhlutverk: Anne Hathaway, Rebel Wilson, Tim Blake Nelson,
Alex Sharp, Ingrid Oliver, Emma Davies, Dean Norris og Casper
Christensen Leikstjórn: Chris Addison Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó,
Sambíóið Álfabakka og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 10. maí
Punktar ....................................................
The Hustle er byggð á handriti myndarinnar Dirty Rotten Scoundrels
sem sló í gegn árið 1988 með Michael Caine, Steve Martin og Glenne
Headly í aðalhlutverkum, en handrit hennar var aftur byggt á handriti
myndarinnar Bedtime Story frá árinu 1964 þar sem þau Marlon Brando,
David Niven og Shirley Jones léku aðalhlutverkin.
l
Danski leikarinn Casper Christensen leikur einn af þeim mönnum
sem Lonnie og Lady snara í gildru sína en Casper er auðvitað þekkt-
astur fyrir að leika í sjónvarpsþáttunum og bíómyndunum Klovn.
l
Þær Penny og Josephine hittast fyrst í lestarferð þar sem Penny
platar karlmenn upp úr skónum með alls konar lygasögum.
Veistu svarið?
Anne Hathaway fagnar 20 ára leikferilsafmæli
sínu um þessar mundir sem hófst þegar hún fékk
hlutverk í sjónvarpsþáttunum Get Real árið 1999.
Tveimur árum síðar sló hún svo í gegn í sínu
fyrsta kvikmyndahlutverki. Í hvaða mynd?
The Princess Diaries.
Myndir mánaðarins
17