Bíófréttir – Væntanlegt
Gleymdu síðustu þremur
Ný mynd frá Edward Norton
Það hefur ekki mikið borið á Edward Norton
á undanförnum árum, eða allt síðan hann
var í sviðsljósinu árið 2014 þegar myndirnar
Birdman og The Grand Budapest Hotel
gerðu það gott. Að vísu hefur hann tekið
að sér smærri verkefni síðan þá en ástæðan fyrir því að hann
hefur ekki tekið að sér stærri hlutverk er að hann keypti árið 2013
kvikmyndaréttinn að verðlaunabók rithöfundarins Jonathans Leth-
em, Motherless Brooklyn, og ákvað að gera allt í senn, framleiða
myndina, skrifa handritið, leikstýra henni og leika aðalhlutverkið.
Tökum á myndinni er nú að mestu lokið og er áætlað að hún verði
frumsýnd í byrjun desember. Myndin segir frá manni einum, Lionel
Essrog, sem starfar hjá einkaspæjara að nafni Frank Minna í New
York. Dag einn er Frank myrtur af ókunnum aðila og í framhaldinu
kemst fátt annað að í huga Lionels en að finna þann seka og komast
að ástæðunni fyrir morðinu. Það er Bruce Willis sem leikur Frank en
á meðal annarra leikara í stórum hlutverkum eru þau Willem Dafoe,
Gugu Mbatha-Raw, Alec Baldwin, Leslie Mann, Bobby Cannavale
og Fisher Stevens. Þetta er önnur mynd Edwards sem leikstjóra en
sú fyrri var hin ágæta rómantíska kómedía Keeping the Faith (2010).
Næsta Terminator-mynd, Dark Fate, sem nú er í eftir- og tækni-
vinnslu verður frumsýnd 1. nóvember og bíða margir spenntir eftir
að sjá fyrstu sýnishornin úr henni enda hefur söguþræðinum verið
haldið kirfilega leyndum, en hann er saminn af James Cameron
sjálfum í samvinnu við David S. Goyer og Justin Rhodes og tók
sá síðastnefndi það að sér að skrifa handritið. Eitt hefur þó verið
látið uppi um atburðarásina og það er að hún gerist í framhaldi af
Terminator 2: Judgment Day og að í henni er algjörlega strokað yfir
allt sem gerðist í myndunum þremur sem komu þar á eftir, þ.e. Rise
of the Machines, Salvation og Genisys, og látið sem það hafi aldrei
gerst. Væntanlegir áhorfendur sem séð hafa þær myndir eru því
vinsamlega beðnir að eyða þeim sögum úr minninu!
Myndin hér fyrir ofan er af þremur af sex aðalpersónum myndar-
innar, þeim Dani, Grace og Söruh (Natalia Reyes, Mackenzie Davis
og Linda Hamilton), en hinar þrjár eru vélmenni úr framtíðinni sem
þeir Brett Azar, Gabriel Luna og Arnold Schwarzenegger leika.
Jólamyndin í ár?
Shazam snýr aftur
Velgengi ofurhetjunnar Shazam! hefur verið mikil og jafnvel meiri
en reiknað var með og því kom það fáum á óvart þegar tilkynnt
var á dögunum að búið væri að ákveða að gera aðra mynd um
hann. Fyrsta skrefið hefur þegar verið tekið en það var að ráða
sögu- og handritshöfundinn Henry Gayden aftur til starfa. Að
sögn fólks sem þekkir til þykir og mjög líklegt að leikstjórinn
David F. Sandberg verði fenginn til að leikstýra myndinni. Engar
dagsetningar liggja fyrir en hvort sem það tekur tvö eða fimm ár
að koma Shazam! 2 á tjaldið geta aðdáendur kappans alla vega
glaðst yfir að hann og hans lið hefur alls ekki sungið sitt síðasta.
Já, já, við vitum að það er fullsnemmt að fólk sé farið að velta fyrir
sér væntanlegum jólamyndum svona rétt í sumarbyrjun en við
megum samt til með að nota síðasta plássið hér að þessu sinni til
að minnast á myndina Last Christmas sem verður frumsýnd í lok
nóvember. Hún er eftir breska leikstjórann Paul Feig, sem gerði
m.a myndirnar Bridesmaids, The Heat, Spy og núna síðast A Simple
Favor, og er gerð eftir handriti Emmu Thompson. Hún leikur
einnig stórt hlutverk ásamt Michelle Yeoh en í aðalhlutverkum eru
þau Emilia Clarke og Henry Golding. Myndin dregur heiti sitt af
samnefndu lagi sem Wham-dúettinn flutti á sínum tíma og George
Michael samdi og eftir því sem okkur skilst er megnið af tónlistinni
í myndinni eftir hann, bæði lög sem allir þekkja svo og lög sem
fundust í dánarbúi hans og hafa aldrei heyrst opinberlega áður.
Við hér á Myndum mánaðarins teljum okkur hafa fulla ástæðu til
að spá því að þessi mynd muni slá í gegn. Fylgist með frá byrjun!
Myndir mánaðarins
13