Bíófréttir – Væntanlegt
Allt getur nú gerst Ást við fyrstu sýn
Long Shot er nýjasta mynd leik-
stjórans og handritshöfundarins
Jonathans Levine sem á m.a. að
baki myndirnar The Wackness,
Warm Bodies, 50/50 og The Night
Before. Hér vinnur hann með
handrit Liz Hannah (The Post) og
Dans Sterling (The Interview) og
fjallar sagan um blaðamanninn
og greinahöfundinn Fred Flarsky
(Seth Rogen) sem þrátt fyrr að
vera góðum rithæfileikum gædd-
ur hefur strögglað meira og minna allan sinn feril, aðallega vegna
þess að hann á erfitt með að hemja sig í aðstæðum sem krefjast
þess að hann hemji sig. Fred hefur lengi verið ástfanginn af Char-
lotte Field (Charlize Theron), eða allt frá því að hún passaði hann
þegar hún var ung og hann enn yngri. Á milli þeirra var hins vegar,
og er auðvitað enn, sjö ára aldursmunur þannig að engar líkur voru
á því að sú ást skilaði miklu. Auk þess fetaði Charlotte framabrautir
í stjórnmálum sem hafa leitt til þess að hún er nú orðin vænlegur
kandídat til forsetaframboðs og inn í þá mynd mun Fred Flarsky
seint passa. Það er því frekar ólíklegt að leiðir hans og hennar eigi
eftir að liggja saman á ný. En það gerist nú samt þegar honum býðst
að reyna sig við það verkefni að skrifa framboðsræður Charlotte
og upp úr því hefst skondin og rómantísk atburðarás sem kemur á
óvart, ekki síst þeim sjálfum.
Long Shot var forsýnd á South by Southwest-hátíðinni í mars og
hefur fengið mjög góða dóma þeirra sem sáu hana þar. Þykir hún
því afar líkleg til vinsælda þegar hún fer í almenna dreifingu og
gerir áætlun ráð fyrir að hún komi í bíó hér á landi um miðjan júní. Bandaríski rithöfundurinn Nicola Yoon sló
í gegn með sinni fyrstu bók, Everything,
Everything, árið 2015 og það leið ekki á
löngu uns búið var að kvikmynda hana
með þeim Amöndlu Stenberg og Nick
Robinson í aðalhlutverkum eins og
margir muna. Næsta bók Yvonne, The Sun
is Also a Star sem kom út 2016, varð svo
enn vinsælli og í júní verður frumsýnd
mynd sem er gerð eftir henni og heitir
það sama. Þetta er rómantísk ástarsaga um New York-búana Nat-
öshu og Daniel (Yara Shahidi og Charles Melton) sem fella hugi
saman svo að segja strax þegar þau hittast. Yfir sambandi þeirra
hvílir þó sá skuggi að þar sem fjölskylda Natöshu kom ólöglega til
Bandaríkjanna á hún á hættu að vera vísað úr landi.
Þess má geta að við Íslendingar eigum dálítið í þessari mynd því
tónlistin í henni er samin af Herdísi Stefánsdóttur.
Júníhrollurinn
Að skrifa ræður fyrir forsetaframbjóðendur krefst þess að maður
viti talsvert um þá og því þurfa þau Fred og Charlotte að eyða
tíma saman við spjall. Fáa grunar hins vegar hvað gerist næst.
12
Myndir mánaðarins
Enn ein myndin úr The Conjuring-seríu
James Wan er væntanleg í bíó í lok júní
og er um að ræða þriðju myndina um
brúðuna illskeyttu, Annabelle. Í þetta
sinn er það Gary Dauberman sem
leikstýrir og þótt þetta sé hans fyrsta
leikstjórnarverkefni er hann öllum
hnútum kunnur í bransanum enda
skrifaði hann handrit fyrri tveggja Annabelle-myndanna, svo og
handrit It-myndanna, bæði þeirrar sem frumsýnd var haustið 2017
sem og framhaldsmyndarinnar sem verður frumsýnd í september.
Við kynnum þessa þriðju Annabelle-mynd að sjálfsögðu meira og
betur í næsta blaði en þeim sem þora og hafa aldur til er auðvitað
guðvelkomið að kynna sér hana nú þegar á netinu og skoða
hrollvekjandi stikluna sem var frumsýnd fyrir skömmu.