Myndir mánaðarins MM Júlí 2019 DVD VOD BR | Page 20
Blaze – Billi Blikk
Ástarævintýri um tónlist
Tónlistarmaðurinn Michael David Fuller, betur þekktur undir sviðsnafni sínu
Blaze Foley, lést langt um aldur fram árið 1989 þegar hann var skotinn til
bana 39 ára gamall. Hér fangar Ethan Hawke sögu hans í sinni þriðju mynd
sem leikstjóri og þykir mörgum hún vera á meðal bestu mynda ársins 2018.
Michael, sem var reyndar ætíð kallaður Blaze eftir að hann byrjaði að koma fram
sem sólólistamaður í Austin í Texas, þótti afar sérstæður maður sem um leið
var eins og fæddur til að spila og syngja kántrítónlist. Eftir að hafa alist upp í
söngelskri fjölskyldu og kvænst ástinni í lífi sínu, Sybil, lagði hann ásamt henni
land undir fót með gítarinn og var fljótur að skapa sér nafn á meðal helstu kántrí-
tónlistarmanna í Bandaríkjunum. Þetta er hrífandi mynd sem allir ættu að sjá.
Punktar ..................................................................
HHHHH - Observer HHHH 1/2 - N.Y. Times HHHH 1/2 - Chicago Sun-Times
HHHH - E. Weekly HHHH - Rolling Stone HHHH - Hollywood Reporter
Blaze hefur hlotið afar góða dóma
og mörg verðlaun og viðurkenningar.
Hún var m.a. tilnefnd til dómnefndar-
verðlaunanna á Sundance-hátíðinni
í fyrra flokki dramamynda og Ben
Dickey hlaut verðlaunin í þeim sama
flokk fyrir besta leik í aðalhlutverki.
l
Ethan Hawke skrifaði handritið eftir
minningarbók eiginkonu Blaze, Sybil,
og í samvinnu við hana, en hún leikur
einnig sína eigin móður í myndinni.
l
129
VOD
mín
Aðalhl.: Ben Dickey, Alia Shawkat og Charlie Sexton
Leikstjórn: Ethan Hawke Útgefandi: Myndform
Sannsögulegt
Myndin er að mestu tekin upp á
þeim slóðum þar sem Blaze gerði
garðinn frægan á sínum tíma.
l
19. júlí
Ben Dickey og Alia Shawkat leika aðal-
hlutverkin í Blaze, hjónin Michael David
„Blaze“ Fuller og Sybil Fuller Rosen.
Ævintýri í Ástralíu
Teiknimyndirnar um kóalabjörninn Billa Blikk
og félaga eru byggðar á bókum eftir nýsjá-
lenska rithöfundinn Dorothy Wall, en þær
komu út á árunum 1933 til 1937 og hafa allar
götur síðan notið vinsælda víða um heim.
Fyrstu teiknimyndirnar um Billa Blikk voru gerðar
upp úr 1990 og leiddu til tölvuteiknaðrar bíó-
myndar sem var frumsýnd 2017. Í kjölfarið var
gerð ný teiknimyndaröð um Billa og vini og
ævintýri þeirra og kom fyrsti hluti hennar út á
sjónvarpsleigunum 15. mars og annar hlutinn 10.
maí. Og nú er komið að þriðja hlutanum 19. júlí.
96
VOD
mín
Teiknimyndir með íslensku tali um Billa Blikk og
hina eldhressu félaga hans Útgefandi: Myndform
Barnaefni
20
Myndir mánaðarins
19. júlí