Myndir mánaðarins MM Febrúar 2019 DVD VOD og tölvuleikir | Page 15
Grace Jones: Bloodlight and Bami – 211
Konan sem þorði að lifa
Kraft- og yfirgripsmikil heimildarmynd um lífsstarf Grace Jones sem varð
ein af ofurfyrirsætum áttunda og níunda áratugar síðustu aldar og sló um
leið í gegn sem tónlistarkona auk þess sem hún lék í nokkrum bíómyndum.
Grace Jones fæddist á Jamaica í maí 1948 en fluttist 13 ára gömul til New York. Þar
leið ekki á löngu uns hún var komin á fyrirsætusamning sem leiddi til enn stærri
samninga við tískufyrirtæki eins og Yves St. Laurent og Kenzo. Árið 1977 skrifaði
hún síðan undir plötusamning við Island Records og má segja að hún hafi átt
sviðið á uppgangsárum Stúdíos 54 í New York sem var nokkurs konar vagga
diskótónlistarinnar. Í myndinni er farið yfir feril hennar en um leið kynnumst við
persónunni á bak við sviðsútlitið, móðurinni og ömmunni sem hefur ætíð ræktað
sambandið við heimaland sitt þrátt fyrir minningar um mjög erfiða barnæsku ...
Punktar ..................................................................
HHHHH - CineVue HHHH 1/2 - N.Y. Times HHHH 1/2 - Screen Internat.
HHHH - L.A. Times HHHH - Wrap HHHH - Time Out HHHH - Guardian
Bloodlight and Bami hefur eins og
sést hér að ofan fengið góða dóma
gagnrýnenda og hlotið nokkur verð-
laun, þ. á m. á kvikmyndahátíðinni í
Washington í fyrra þar sem hún var
valin besta heimildarmyndin. Þess
má geta að orðið „bloodlight“ vísar í
rauðu aðvörunarljósin sem kvikna í
hljóðverum þegar upptökur eru í
gangi og orðið „bami“ þýðir „brauð“ á
móðurmáli Grace Jones.
l
110
VOD
mín
Heimildarmynd um tónlistarkonuna Grace Jones
Höfundur: Sophie Fiennes Útgefandi: Myndform
8. febrúar
Heimildarmynd
Þess má líka geta að höfundur mynd-
arinnar, Sophie Fiennes, er systir þeirra
Ralphs og Josephs Fiennes.
l
Grace Jones, sem varð sjötug í fyrra, ásamt
höfundi myndarinnar, Sophie Fiennes.
Bara einn dagur enn ...
Lögreglumaðurinn Mike Chandler er nýbúinn að missa eiginkonu sína úr
krabbameini og er því ekki upp á sitt besta þegar honum og félaga hans,
Steve, er falið að taka ungan mann, Kenny, með sér í venjubundna eftirlits-
ferð. Áður en varir breytist verkefnið hins vegar í skotbardaga við þung-
vopnaða bankaræningja sem hlífa engum sem stendur í vegi þeirra.
Þremenningarnir í lögreglubílnum vita vart hvaðan á sig stendur veðrið þegar
þeir aka inn á vettvang ránsins og verða þegar fyrir kröftugri kúlnahríð. Með snar-
ræði tekst Mike og Steve að komast í skjól en hinn ungi Kevin hleypur út úr bílnum
og reynir að fela sig í aftursæti annarrar bifreiðar. Það kemur í veg fyrir að Mike
geti hörfað og í gang fer æsileg barátta þar sem hann freistar þess að bjarga bæði
sér og Kevin áður en það er of seint. Þess má geta til gamans að einn af banka-
ræningjunum miskunnarlausu, Luke, er leikinn af syni Nicolas Cage, Weston Cage.
VOD
111
mín
Aðalhlutverk: Nicolas Cage, Dwayne Cameron og Cory
Hardrict Leikstjórn: York Shackleton Útgef.: Myndform
Spenna/hasar
8. febrúar
Nicolas Cage leikur lögreglumanninn Mike Chandler í 211, en heiti myndar-
innar vísar í kallnúmer lögreglunnar í Los Angeles þegar um er að ræða rán.
Myndir mánaðarins
15