Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 23
Hin ótrúlegu 2
Brettið upp ermarnar!
Hin ótrúlega Parr-fjölskylda mætir til leiks á VOD-leigunum
10. desember, rúmum þrettán árum eftir að fyrri myndin um
þau var frumsýnd, en hún er af mörgum talin ein besta Pixar-
myndin til þessa. Þessi nýja mynd gefur henni ekkert eftir
enda eru aðstandendur hennar þeir sömu, þ. á m. leikstjórinn
Brad Bird og leikararnir sem ljá persónunum raddir sínar.
Þótt þrettán ár séu liðin frá því við hittum Parr-fjölskylduna hefur
tíminn í sögunni um þau lítið liðið því myndin byrjar skömmu eftir
að þeirri fyrri lauk. Eftir að hafa bjargað heiminum frá glötun færist
nú ró yfir fjölskyldulífið, allt þar til Helenu er boðið nýtt og mikilvægt
starf sem hún getur ekki hafnað. Vandamálið er að þá verður Bob
auðvitað að sjá um heimilishaldið en það er langt í frá létt verk því
það inniheldur að hafa hemil á krökkunum þremur, þeim Violet,
Dash og hvítvoðungnum Jack-
Jack sem er stórhættulegur sem
fyrr því hann hefur lítið vald yfir
ofurkröftum sínum og má alls
ekki borða kökur. En að sjálf-
sögðu gerast síðan atburðir sem
kalla á að Parr-fjölskyldan bretti
enn á ný upp ermarnar og bjargi
mannkyninu frá tortímingu ...
Hin ótrúlegu 2
Teiknimynd
VOD
118
mín
Myndin er að sjálfsögðu vandlega talsett á íslensku en þau sem
tala fyrir helstu persónurnar í ensku útgáfunni eru Craig T. Nelson,
Holly Hunter, Sophia Bush, Samuel L. Jackson, Catherine Keener,
Jonathan Banks, Brad Bird, Bob Odenkirk, Isabella Rossellini og John
Ratzenberger Leikstjórn: Brad Bird Útgefandi: Síminn og Vodafone
10. desember
Myndir mánaðarins
23