Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 22
Crazy Rich Asians
Ástin er eitt – fjölskyldan er allt annað!
Þau Rachel, sem er hagfræðiprófessor í New York, og Nick,
sem stundar viðskipti í borginni, hafa verið saman í rúmlega
ár og eru ástfangnari en nokkurn tíma fyrr. Nick ákveður því
að bjóða Rachel til Singapúr að hitta fjölskyldu sína, en sú
fjölskylda á sannarlega eftir að koma henni á óvart.
Crazy Rich Asians er byggð á samnefndri metsölu-
bók Kevins Kwan sem kom út árið 2013 og þykir
allt í senn, fyndin, rómantísk og flugbeitt ádeila á
lífsstíl þeirra sem vita ekki aura sinna tal og telja
sér alla vegi færa á peningunum einum saman.
Það sem Rachel veit ekki um Nick er að hann er
kominn af flugríku fólki og hefur um árabil verið
eftirsóttasti piparsveinn landsins. Þegar við bæt-
ist að móðir hans er síður en svo sátt við val hans
á kvonfangi og ákveður strax að reyna allt til að hrekja Rachel á brott
þarf Rachel að ákveða hvort hún eigi að hrökkva eða stökkva ...
Crazy Rich Asians
Gamanmynd / Rómantík
Rachel Wu, sem hin stórskemmtilega Constance Wu leikur, er lítt
undir það búin að hitta fjölskyldu unnusta síns, síst af öllu móður
hans sem á eftir að láta reyna á hana. En Rachel er ekkert blávatn.
100
VOD
mín
Aðalhlutverk: Constance Wu, Henry Golding, Michelle Yeoh,
Gemma Chan, Awkwafina, Ken Jeong, Jimmy O. Yang og Chris Pang
Leikstjórn: Jon M. Chu Útgefandi: Síminn og Vodafone
10. desember
Punktar ....................................................
HHHHH - Time Out HHHH 1/2 - Slate HHHH 1/2 - R.Ebert.com
HHHH 1/2 - N.Y. Post HHHH - L.A. Times HHHH - Guardian
HHHH - IndieWire HHHH - Empire HHH H - The Observer
HHHH - Rolling Stone HHHH - Time HHH H - Film Threat
HHHH - The Wrap HHHH - IGN HHH H - Hollyw. Reporter
Crazy Rich Asians hefur eins og sést hlotið toppdóma gagnrýnenda
og er af mögum talin besta rómantíska kómedía ársins enda sló hún
hressilega í gegn í kvikmyndahúsum beggja vegna Atlantshafsins.
l
Eftir rúmlega eins árs kynni vill Nick að Rachel komi með sér til
Singapúr að hitta fjölskyldu sína, en það jafngildir nánast bónorði.
Veistu svarið?
Þau Constance Wu og Henry Golding þykja frábær í
aðalhlutverkum þessarar myndar sem parið Rachel
og Nick, en svo skemmtilega vill til að Henry leikur
einnig eitt af aðalhlutverkunum í annarri vinsælli
mynd sem kemur út í desember. Hvaða mynd?
Við fyrstu kynni virðist fara vel á með móður Nicks, Eleanor, og Rachel
en fljótlega kemur í ljós að Eleanor ætlar sér að hrekja hana á brott.
A Simple Favour.
22
Myndir mánaðarins