Myndir mánaðarins Maí 2018 tbl. 292 DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 25
Oasis: Supersonic
Frá upphafi til enda
Heimildarmyndin Supersonic segir frá bræðrunum Liam og Noel Gallagher,
allt frá æsku og til fullorðinsára, en þeir urðu heimsfrægir árið 1994 með
hljómsveitinni Oasis þegar fyrsta plata þeirra, Definitely Maybe, kom út.
Aðdáendur góðra heimildarmynda og þá ekki síst aðdáendur hljómsveitarinnar
Oasis ættu ekki að láta þessa mynd fram hjá sér fara en hún hefur hlotið afar
góða dóma og þykir sýna alveg einstaklega vel úr hverju þeir Gallagher-bræður
eru gerðir og tilurð Oasis. Auk þess er hér að finna mikið efni frá tónleikum sveit-
arinnar og enn meira úr einkalífi bræðranna, bæði innan og utan sviðsljóssins.
Punktar ............................................................................................
HHHH - L.A. Times HHHH - Village Voice HHHH - Time Out London
HHHH - Empire HHHH - Total Film HHH 1/2 - Chicago Sun-Times
Höfundur myndarinnar, Mat
Whitecross, á m.a. að baki heim-
ildarmyndirnar The Road to Guant-
anamo og Sex & Drugs & Rock &
Roll en hefur þess utan gert fjölda
tónlistarmyndbanda, þ. á m. mörg
við lög hljómsveitarinnar Coldplay.
l
Heiti myndarinnar, Supersonic, er
sótt í fyrsta lagið sem Oasis gaf út á
smáskífu en það fór í 31. sæti breska
vinsældalistans árið 1994 og var
síðan að finna á fyrstu stóru plötu
sveitarinnar, Definitely Maybe.
l
116
VOD
mín
Heimildarmynd eftir Mat Whitecross um Gallagher-bræð-
urna Liam og Noel og hljómsveitina Oasis Útgef.: Myndform
Heimildarmynd
18. maí
Jack Black lék við hvurn sinn fingur við
ströndina í Venice í Kaliforníu 19. apríl þar
sem hann var að leika í nýju myndbandi Gor-
illaz. Því miður vitum við ekki heiti lagsins.
Margt af myndefninu í þessari
mynd er úr einkasöfnum og hefur
aldrei áður verið sýnt opinberlega.
l
Þær Mackenzie Davis, Charlize Theron og Diablo
Cody voru kátar á frumsýningu myndarinnar
Tully í L.A. 18. apríl, en þær fyrrnefndu leika
aðalhlutverkin og Diablo skrifaði handritið.
Þær Laura Dern, Reese Witherspoon og Nicole
Kidman skelltu sér saman í hádegisverð 18.
apríl, en þær eru jafnframt að leika saman í
sjónvarpsþáttunum vinsælu, Big Little Lies.
Myndir mánaðarins
25