Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 16

Svona er lífið ( C ’ est la vie !) Ekkert er klappað og klárt
Happy End „ Veröldin er allt í kring og við í miðjunni , og sjáum ekkert .“
C ’ est la vie ! – Happy End
Svona er lífið ( C ’ est la vie !) Ekkert er klappað og klárt
Svona er lífið er eftir þá Olivier Nakache og Eric Toledano sem slógu hressilega í gegn árið 2012 með hinni einstöku mynd sinni Intouchables þar sem þeir François Cluzet og Omar Sy fóru á kostum sem hinn lamaði Philippe og aðstoðarmaður hans , Driss .
Svona er lífið gefur Intouchables ekkert eftir í þeim húmor og skemmtilegheitum sem Frökkum er einum lagið að galdra fram en hún segir í stuttu máli frá Max Angély sem hefur langa reynslu að baki við skipulagningu alls kyns gleðskapar . Í þetta sinn hefur hann tekið að sér að sjá um veisluna í brúðkaupi sem á að halda á 18 . aldar óðalssetri og skal ekkert til sparað til að gera hana sem glæsilegasta og skemmtilegasta fyrir gestina . Við fylgjumst síðan með Max og starfsfólki hans undirbúa veisluna og að sjálfsögðu fer allt úrskeiðis , Max og hans fólki til mikillar mæðu á meðan áhorfendur hlæja sig máttlausa ...
Punktar ............................................................................................ l Svona er lífið var opnunarmynd Frönsku kvikmyndahátíðarinnar í janúar .
VOD
Aðalhl .: Jean-Pierre Bacri , Jean-Paul Rouve og Gilles Lellouche Leikstj .: Nakache og Toledano Útg .: Sena
Gamanmynd
VOD
117 mín
12 . apríl
108 mín
Aðalhlutverk : Isabelle Huppert , Jean-Louis Trintignant og Mathieu Kassovitz Leikstj .: Michael Haneke Útg .: Sena
Gamandrama
12 . apríl
Jean-Pierre Bacri leikur veislustjórann Max Angély í þessari þrælfyndnu gamanmynd .
Happy End „ Veröldin er allt í kring og við í miðjunni , og sjáum ekkert .“
Í þessari nýjustu mynd meistaraleikstjórans Michaels Haneke býður hann okkur í heimsókn til hinnar auðugu Laurent-fjölskyldu sem er saman komin ásamt vinum til að fagna 85 afmælisdegi ættföðurins Georges Laurent .
Happy End , sem var ein af myndum Frönsku kvikmyndahátíðarinnar í janúar sl ., er fyrir þá sem kunna að meta evrópska kvikmyndagerð eins og hún gerist best . Á yfirborðinu virðist Laurent-fjölskyldan hafa það gott en undir niðri krauma alls konar mál sem Michael kryddar með sinni einstöku kímni og beittri kaldhæðni ...
Punktar ............................................................................................ HHHHH - The Guardian HHHH1 / 2 - N . Y . Times HHHH1 / 2 - L . A . Times HHHH1 / 2 - RogerEbert . com HHHH - Time Out HHHH - Empire
l Þetta er í annað sinn sem þau Isabelle Huppert og Jean-Louis Trintignant leika saman í mynd eftir Michael Haneke en þau léku einmitt líka feðgin í mynd hans , Amour , árið 2012 , en hún hlaut Óskarsverðlaunin sem besta erlenda mynd ársins og var Haneke einnig tilnefndur fyrir leikstjórnina og handrit þeirrar frábæru myndar .
l Happy End var tilnefnd til Gullpálmans í Cannes fyrir leikstjórn Michaels Haneke og til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fyrir leik þeirra Isabelle Huppert og Jean- Louis Trintignant í aðalhlutverkum kvenna og karla . Myndin var þess utan framlag Austurríkis til Óskarsverðlauna í ár sem besta erlenda myndin .
Það er óhætt að segja að Laurent-fjölskyldan er ekki öll þar sem hún er séð .
16 Myndir mánaðarins