hafa þeir sjálfsagt breitt vandlega yfir sporin sín, en áfram
hélt hópurinn um Kaldadal. Ýmsar sagnir eru til tengdar
þessum fjallvegi sem var fjölfarinn til forna og er enn,
ef dæma má af umferðinni um dalinn þennan dag. Hjá
Skúlaskeiði var sumum hugsað til þjóðsögunnar um Skúla
nokkurn sem dæmdur var til dauða á Alþingi en komst
undan á hesti sínum, Sörla. Fjandmenn Skúla „eltu hann
á átta hófa hreinum og aðra tvenna höfðu þeir til reiðar“,
en náðu honum ekki. Grímur Thomsen orti sem frægt var
kvæðið Skúlaskeið um þessa atburði og um örlög Sörla segir
í einu erindinu:
Hann forðaði Skúla undan fári þungu,
fjöri sjálfs sín hlífði klárinn miður og svo með blóðga leggi, brostin lungu
á bökkum Hvítár féll hann dauður niður.
Á Kaldadal var stoppað stutt við stæðilega vörðu efst á
Langahrygg sem ferðamenn eru vanir að kasta steinum í
og gildnaði varðan sjáanlega við heimsókn félagsmanna
Verkalýðsfélags Akraness, enda báru þeir röskustu í hana
grjót af miklum móð. Áfram var ekið fram hjá Biskupsbrekku
og þess minnst þegar Jón Vídalín biskup í Skálholti veiktist
skyndilega og andaðist þar síðsumars árið 1720 er hann var á
leið í jarðarför vestur á Snæfellsnes. Kross hefur verið reistur
á staðnum til minningar um þennan atburð, og sést vel í
hann frá veginum. Sagt er að áður en biskup lagði af stað frá
Skálholti hafi hann kveðið þessa vísu:
Hópurinn snæðir hádegisverð á Fosshóteli, Reykholti
Ragnheiður Ásgrímsdóttir og Elín Hannesdóttir við Hraunfossa
Herra guð í himnasal,
haltu mér við trúna.
Kvíði ég fyrir Kaldadal,
kólna tekur núna.
Um Tröllaháls, hjá Sandkluftavatni og um Bolabás náði
hópurinn til Þingvalla er leið á daginn og stoppaði stuttlega
í þjónustumiðstöðinni á Leirum. Þjóðgarðurinn skartaði
sínu fegursta þegar ekið var í gegnum hann austan megin
við Þingvallavatn í sólskini og afar fallegu haustveðri. Lá
leiðin í gegnum Þrastaskóg og var ekki staðar numið fyrr
en við Hótel Örk í Hveragerði þar sem ferðafólksins beið
síðdegishressing, kaffi og kökudiskur. Veitingunum voru
gerð góð skil og því næst var lagt á Hellisheiðina og ekið
heim á leið í einum rykk.
Ferðin þótti afar vel heppnuð í alla staði, veðrið lék við
hópinn og ótal góðar minningar urðu til. Sérstaklega ber
að þakka þeim sem veittu hópnum móttöku á ferðalaginu,
leiðsögumanninum snjalla Birni Inga Finsen og bílstjórunum
sem komu öllum heilum heim, þeim Atla og Sigurbaldri.
Ekki má gleyma að þakka þeim stóra hópi félagsmanna sem
ásamt mökum tók þátt í þessa ferð, sumir í fyrsta sinn en
aðrir hafa komið árum saman. Innan hópsins ríkir fágætur
félagsandi og verða það að teljast forréttindi að eiga að slíkan
hóp félagsmanna.
Pétur Jóhannesson, Björn Ingi Finsen og Ingi Þór Bjarnason
Vaskir ferðamenn bera grjót í vörðu á Kaldadal
9