Ferð heldri deildar VLFA
Fimmtudaginn 28. ágúst síðastliðinn hélt um 110 manna
hópur í dagsferð í boði Verkalýðsfélags Akraness, en
félagsmönnum 70 ára og eldri og mökum þeirra hefur um
árabil verið boðið í slíkar ferðir og þær verið fastur liður í
starfsemi félagsins. Eins og svo oft áður var það Björn Ingi
Finsen sem veitti hópnum dygga leiðsögn og miðlaði fróðleik
og skemmtilegum frásögnum af sinni alkunnu snilld.
Grettir Hákonarson og Sigurjón Gunnlaugsson ræða málin hjá Þverárrétt
Bræðurnir Páll Jónsson og Jón Jónsson
Þórný Elísdóttir, Sigrún Clausen, Jónína Jónsdóttir, Þorbjörg Þorbjörnsdóttir,
Auður Sæmundsdóttir og Jóna K. Ólafsdóttir
Hjónin Ágústa Guðrún Jóhannesdóttir og Gylfi Jónsson
8
Hópurinn hélt af stað frá Akranesi snemma morguns í
tveimur rútum og var ekið sem leið lá upp í Borgarfjörð.
Þar teygðu ferðalangar aðeins úr sér við eina fjárflestu rétt
landsins, Þverárrétt, þangað sem fé er rekið af afrétti bænda
í Hvítársíðu, Þverárhlíð og Stafholtstungum. Ekkert var þó
að sjá af fé að þessu sinni, en margir könnuðust vel við sig á
svæðinu, áttu ættir sínar að rekja í nágrennið, höfðu verið í
sveit á þessum slóðum eða mundu eftir að hafa sótt dansleik
í félagsheimilinu, sem staðsett er örskammt frá réttinni.
Frá Þverárrétt var ekið að vatnsmesta hver landsins,
Deildartunguhver, þaðan sem Akurnesingar fá heita vatnið
um 64 kílómetra langa vatnslögn. Eftir stutt stopp í
sólskininu við Deildartunguhver var ekið að Flókadal, en
á bænum Steðja í mynni hans er rekið samnefnt brugghús.
Bruggmeistarar Steðja tóku vel á móti hópnum, kynntu
framleiðsluferlið fyrir gestunum sem fengu svo að skoða
verksmiðjuna hátt og lágt. Hjá Steðja eru ýmis forvitnileg
hráefni notuð til framleiðslu á bjór, til að mynda hvalamjöl
og jarðarber, auk hráefna af hefðbundnari toga. Eftir
kynninguna var boðið upp á smakk á nokkrum afurðum
brugghússins áður en haldið var aftur af stað í átt að
Reykholti.
Í Reykholti átti hópurinn pantaðan hádegisverð á Fosshóteli
og snæddi þar súpu og fisk og fékk kaffi á eftir. Sumir röltu
aðeins um svæðið eftir matinn, enda margt að skoða á þessum
sögufræga stað og fallegt að horfa yfir Reykholtsdalinn. Því
næst lá leiðin hjá Rauðsgili Jóns prófessors Helgasonar og
yfir í Hálsasveit og inn með Hvítársíðunni að Hraunfossum
þar sem áð var stutta stund áður en ekið var hjá Húsafelli og
áfram haldið á þekktar útlagaslóðir í grennd við