Rafræn þjónusta
Árið 2010 tók Verkalýðsfélag Akraness í notkun vefþjónustu
fyrir félagsmenn annars vegar og launagreiðendur hins vegar
og er sífellt verið að bæta þjónustuna í takt við auknar kröfur
þeirra sem hana nota. Hægt er að sækja um aðgang að félagavef
og launagreiðendavef á heimasíðu VLFA og er lykilorðið sent í
netbanka um hæl.
Vefur félagsmanna veitir aðgang að ýmsum upplýsingum um
iðgjöld, réttindi og greiðslur frá félaginu. Greiðsluseðlar og
launamiðar vegna styrkja og sjúkradagpeninga eru aðgengilegir á
vefnum og auk þess er hægt að bóka laus orlofshús og greiða fyrir
með korti.
Vefur launagreiðenda veitir aðgang að iðgjöldum og greiðslum,
hægt er að skoða skuldastöðu og skila skilagreinum og fylgir því
óneitanlega ákveðið öryggi við iðgjaldaskil og innheimtu. Nýjasta
viðbótin kom nú í haust. Þegar skilagrein er skilað er nú hægt að velja um að fá kröfu senda beint í netbanka, en áður þurftu
launagreiðendur að muna að millifæra iðgjöldin um hver mánaðarmót.
Viðmót félagavefs Verkalýðsfélags Akraness
Eru félagsmenn og launagreiðendur hvattir til að nýta sér þá þjónustu sem í boði er rafrænt og endilega koma óskum um
bætta þjónustu á framfæri við starfsfólk skrifstofu félagsins.
1. maí 2014
Þessir félagar voru tilbúnir með spjöld á lofti
Óvenju mörg kröfuspjöld voru á lofti í kröfugöngunni í ár. Skilaboð þessarar
snótar voru: „Verum jákvæð og höfum gaman á jörðinni“
10
Fjölmenn kröfuganga í blíðskaparveðri
Jón Jónsson, Elí Halldórsson og Jóna Adolfsdóttir