Afmælisblað VLFA - 90 ára | Page 17

Guðmundur Rúnar Davíðsson, ritari VLFA: Þurfum að efla iðnnám Guðmundur Rúnar Davíðsson hefur starfað í stjórn Verkalýðsfélags Akraness síðan árið 2003. „Ég hef komið að stjórn félagsins á ýmsan hátt. Ég var formaður iðnsveinadeildar þegar kosningarnar voru árið 2003 og ný stjórn tók við. Síðar varð ég ritari félagins og auk þess sit ég í stjórn orlofssjóðs. Fyrir hönd iðnsveinadeildar sit ég einnig í miðstjórn Samiðnar og er í samninganefnd. Ég hef mjög gaman að þessum störfum og þau eru gefandi, fyrir utan það hvað þetta er fræðandi. Maður veit miklu meira en áður um réttindi og annað slíkt.“ Guðmundur Rúnar segir stöðu iðngreina fara batnandi á ný eftir erfið ár í kjölfar hrunsins. „Við hrunið þá fór allt niður á við og fólk var víða látið taka á sig miklar launalækkanir og slíkt. Margir iðnaðarmenn hafa tekið að sér störf erlendis og ég hef nú sjálfur prófað það. Ég vann í Noregi um tíma og það hafði sína kosti, launin voru mikið betri og góð frí á milli tarna en vinnudagurinn var langur og ferðatíminn ekki greiddur. Svo æxlaðist það þannig að ég kom aftur heim og vinn ennþá við smíðar. Þegar maður fer að hugsa út í þetta, þá er maður að verða of gamall í svona flæking.“ Guðmundur Rúnar Davíðsson, ritari VLFA og fulltrúi iðnsveinadeildar í miðstjórn Samiðnar Aðsókn í nám við iðngreinar hefur minnkað síðustu ár og segir Guðmundur Rúnar þá þróun óneitanlega tengjast þeim launum sem í boði eru. „Námslega séð er staðan ekki góð. Allt of fáir iðnaðarmenn útskrifast úr námi og það þarf að kynna iðnnám sem slíkt mun betur. Launakjörin hamla okkur óneitanlega því iðnaðarmenn hafa setið eftir í launahækkunum síðustu ára.“ Félagsmenn við leik og störf Vinnsla á hval hefur gengið vel og hafa um 150 manns haft atvinnu af hvalveiðum í sumar. Hér má sjá starfsmenn í hvalskurði á Akranesi Rakel Hilmarsdóttir við vinnu sína hjá Hval hf. Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir björgun á sjó á sjómannadaginn 2014 Hákon Hjartarson sker hval af miklum móð 17