Afmælisblað VLFA - 90 ára | Page 16

Fjóla Lind Guðnadóttir, starfsmaður Elkem: Öryggismál breyst til batnaðar öryggisfulltrúi starfsmanna á ofni 3 undanfarin 2 ár. Í haust fór hún yfir í annað starf innan verksmiðjunnar og er nú í möluninni þar sem unnið er við að mala málminn og pakka honum. Á þeim tíma sem Fjóla hefur unnið hjá Elkem Ísland hefur ýmislegt tekið breytingum. „Mest finnst mér hafa breyst í öryggismálum hjá verksmiðjunni, miklu hefur verið breytt til batnaðar hvað það varðar síðan ég hóf störf hjá fyrirtækinu.“ Fjóla að störfum hjá Elkem Ísland (Mynd: Elkem) Fjóla Lind Guðnadóttir hefur verið starfsmaður Elkem Ísland frá árinu 2006. Þar hefur hún lengst af verið starfandi sem ofngæslumaður í vaktavinnu. „Ég hef meiri hluta tímans verið eini kvenmaðurinn á ofninum. Það hafa komið inn stelpur í sumarafleysingar og í stuttan tíma í senn en engin verið starfandi þar til lengri tíma,“ segir Fjóla. „Í ofngæ