Afmælisblað VLFA - 90 ára | Page 15

Sögumolar Stofndagur Verkalýðsfélags Akraness var 14. október 1924 en fimm dögum áður höfðu verkamenn og sjómenn á Akranesi komið saman í Báruhúsinu til að ræða stofnun félagsins. Á stofndeginum voru samþykkt lög félagsins og fyrsti formaður var kjörinn Sæmundur Friðriksson. Á þessum tíma­ ótum var jafnframt m rituð félagaskrá Verkalýðsfélags Akraness og stöðugt var bætt við hana eftir því sem tíminn leið og félögum fjölgaði og jafnóðum voru þeir strikaðir út sem hættu í félaginu. Hér til vinstri má sjá fyrstu síðuna í nafnaskrá félagsins, en skráin er varðveitt á Héraðsskjalasafni Akraness. Úr gömlum fundargerðarbókum félagsins: • ... þann 24. júní 1935 var haldinn stjórnarfundur í Verkalýðsfélaginu þar sem rætt var um þörf félagsins fyrir eigin skrifstofu. Ákveðið var að auglýsa lóð félagsins við Bárugötu til sölu og leita eftir lánsmöguleikum til húsbyggingar. Félagið átti eftir að hafa skrifstofuaðstöðu á ýmsum stöðum, meðal annars við Suðurgötu og Vesturgötu, áður en það flutti loks í sitt eigið húsnæði að Kirkjubraut 40 árið 1982. • ... árið 1933 keypti félagið orgel af Bjarna Ólafssyni á Ólafsvöllum. Fyrsta afborgunin var 70 krónur og var greidd þann 21. desember 1933. • Úr Alþýðublaðinu, 3. ágúst 1944 ... í skýrslu félagsins til Alþýðusambands Íslands vegna ársins 1935 var meðal annars farið yfir fjölda félagsmanna VLFA. Samkvæmt skýrslunni voru félagsmenn 294 talsins sem skiptust þannig að karlar voru 236 og konur 58. Árgjald félagsmanna var kynjaskipt en karlmenn þurftu að borga 5 krónur á meðan konur greiddu 3 krónur. • Úr Alþýðublaðinu, 10. mars 1942 Úr Alþýðublaðinu, 29. maí 1947 ...tímaritið Verkakonan var birt á fundum kvennadeildar Verkalýðsfélags Akraness. Þar birtist skáldskapur og fróðleikur eftir meðlimi deildarinnar en ritnefnd skipuðu Herdís Ólafsdóttir, Pálína Steinadóttir og Guðríður Svafarsdóttir. Fyrsta tölublaðið birtist þann 17. september 1931. 15