Afmælisblað VLFA - 90 ára | Page 14

veikindi höfðu komið upp og þá var brugðist við eins fljótt og hægt var. Gos og súkkulaði í ferðalögum Kirkjubraut 40 á árum áður úr og segir: „Þessi maður er að vinna í gluggunum heima hjá mér“ og þetta var í eina skiptið sem ég hef vitað til að reynt var að svindla á atvinnuleysisbótunum. Það var farið svo stíft yfir umsóknirnar.“ Einnig var mikil vinna fólgin í því að fara yfir umsóknir úr sjúkrasjóði félagsins. Fólk þurfti að skila inn skriflegri umsókn sem var svo farið yfir á fundum hjá stjórn sjúkrasjóðs. Stundum var jafnvel hringt heim til Sigrúnar utan skrifstofutíma þar sem þörfin var oft mikil ef óvænt Eitt af því sem Sigrún og Herdís gerðu saman var að skipuleggja ferðir eldri félagsmanna Verkalýðsfélags Akraness en þær ferðir hafa verið árvissar um langt skeið. „Við skipulögðum hvert átti að fara og skrifuðum það niður í möppu ásamt lista yfir þá sem fóru með í hverja ferð. Þetta voru dagsferðir, við fórum um klukkan 9 á morgnana frá Kirkjubrautinni og komið var heim að kvöldi til. Það varð hefð að stoppa á heimleiðinni, til dæmis í Hvalfirði, og bjóða ferðalöngunum upp á gos og prins póló. Þá stóðum við Herdís og opnuðum flöskurnar og allir fengu sér gos og súkkulaði og spjölluðu saman. Ef það var rigning fundum við skjól til að halda í þessa hefð og í eitt skiptið héldum við þessa gosstund undir vegg hjá Botnsskálanum“ rifjar Sigrún brosandi upp en hún mætir enn í hina árlegu ferð VLFA ef hún mögulega getur. Margar góðar minningar skapast í ferðum sem þessum og eru margir eldri félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness eflaust sammála því. Þó svo að nú séu liðin þónokkur ár síðan Sigrún hætti að starfa formlega í Verkalýðsfélagi Akraness fylgist hún augljóslega vel með starfsemi þess. Hún ber hag félagsins fyrir brjósti enda á hún aðild að drjúgum hluta af sögu þess. DG Elkem Ísland óskar félagsmönnum Verkalýðsfélags Akraness hjartanlega til hamingju með 90 ára afmæli félagins Með þökkum og virðingu fyrir góðu samstarfi undanfarin 35 ár 14