Afmælisblað VLFA - 90 ára | Page 13

Kvennaverkfallið á Akranesi 1976 Kvennaverkfallið á Akranesi sem átti sér stað árið 1976 vakti mikla athygli. Konur í fiskvinnslu höfðu fengið nóg af kauptryggingarsamningi sem veitti atvinnurekendum rétt til að segja þeim upp með viku fyrirvara hvenær sem er og kröfðust þess að slíkar uppsagnir gætu aðeins átt sér stað á föstudögum en ekki alla daga vikunnar. Ekki var tekið tillit til þess í nýjum samningum í byrjun árs 1976 og var sú ákvörðun tekin hjá kvennadeild Verkalýðsfélags Akraness að samþykkja ekki samningana en boða til verkfalls. Tíu konur voru kosnar í verkfallsstjórn og á ýmsu gekk þegar verið var að gæta þess að ekki yrðu framin verkfallsbrot. Sigrún Clausen var ein af þeim konum sem tóku þátt í verkfallinu og rifjaði hún upp atburði því tengda í afmælis­ riti Sambands borgfirskra kvenna árið 1986. Þar segir hún meðal annars frá því þegar konurnar fréttu að verið væri að pakka loðnuhrognum í einu fyrirtæki í bænum á meðan á verkfallinu stóð en það hafði verið verk kvenna eingöngu. Konunum tókst að stöðva pökkunina en höfðu þó komið sér upp símakallkerfi til að geta sent út boð ef í ljós kæmi að verið væri að brjóta verkfallslög. Ein verkfallskvennanna bjó nálægt því fyrirtæki sem þær höfðu þurft að hafa afskipti af og fékk hún það hlutverk að setja símakallkerfið af stað ef einhver hreyfing sæist. Sigrún lýsir því sem næst gerðist á eftirfarandi hátt: „Nú, klukkan um hálf ellefu byrjuðu símarnir út um allan bæ að hringja, því kominn var stærðar vörubíll frá kaupfélaginu í Borgarnesi fyrir utan þar sem loðnuskilvindan var. Þustum við nú allar á staðinn. Þegar við komum þangað var búið að hrúga upp á bílinn vélinni og fleira dóti, sem nota þarf við frystingu loðnuhrogna... Þeir voru að leggja síðustu hönd á þetta myrkraverk og máttum við ekki seinna koma, annars hefðu þeir sloppið.“ Konurnar bentu mönnunum á að ólöglegt væri að flytja vinnuvélar og tæki af þeim stað sem verkfall sé á en þeir létu sér ekki segjast: „Langur og mjór bekkur var á miðju gólfi og átti hann að fara upp á bílinn. Settumst við nú þrjár á bekkinn og neituðum að standa upp er hinir vígreifu herrar ætluðu að taka hann. Þeir tóku nú samt undir sinn hvorn endann á bekknum. Stóðu þá tvær upp, en sú þriðja sat sem fastast. Skipti það nú engum togum, þeir bera bekkinn með konunni á, yfir að bílnum. Þegar þangað er komið snúa þeir upp á bekkinn mjög snarlega og hreinlega sturta konunni niður á gólfið. Hún kemur þar niður á fjóra fætur, en stendur snarlega upp...“ Konan sem lenti í þessari ævintýraferð á bekknum lét mennina vita að þeir væru að þverbrjóta öll lög og bað hinar konurnar að leggja bílunum sínum fyrir vörubílinn sem þær og gerðu. Forsvarsmenn fyrirtækisins og fleiri fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness komu á vettvang og leystist málið á góðan hátt. Bjarnfríður Leósdóttir var fundarstjóri á næsta baráttufundi og las hún meðal annars upp skeyti sem höfðu borist konunum til stuðnings ásamt rausnarlegum peningagjöfum í verkfallssjóðinn. Á þessum fundi var samþykkt ályktun þess efnis að skora á útgerðarmenn bæjarins að virða óskir kvennanna en lítið kom út úr því. Eftir árangurslausa fundi kom loks að því þann 15. mars að fundur var haldinn með atvinnumálanefnd, samninganefnd útgerðarmanna og bæjarstjóranum. Fundurinn stóð fram á næsta dag og þann 16. mars var skrifað undir samkomulag þess efnis að segja mætti upp mánudaga og föstudaga. Þó konurnar hefðu óskað þess að einungis mætti segja upp á föstudögum var þetta þó mun skárri niðurstaða en að leyfilegt væri að segja upp hvaða dag vikunnar sem er. Þar með lauk þessu rúmlega tveggja vikna kvennaverkfalli en samkomulagið var samþykkt með 84% atkvæða. Meðlimir kvennadeildarinnar fundu fyrir miklu þakklæti í garð allra þeirra sem sýndu þeim stuðning og vakti verkfallið athygli víða um land. Vísurnar hér fyrir ofan birtust í Dagblaðinu 9. mars 1976. Þar er fjallað um nokkra meðlimi kvennadeildar VLFA og ættu flestir að vita um hverjar er ort. það var þegar ég var að leysa Herdísi af. Svo þegar það var mikið að gera, áður en kauptryggingin kom og ef engin vinna var í frystihúsinu, þá kom ég uppeftir til að vinna við atvinnuleysisbæturnar.“ Á þessum tíma var Guðmundur Magnús Jónsson formaður félagsins og Sigrún átti gott samstarf með honum. „Hann var mjög akkúrat í sínu starfi. Þegar ég átti að leysa hann af rétti hann mér möppur og benti mér á hvað ég átti að gera og ég þurfti ekkert meira, það var allt 100% skýrt.“ Guðmundur Magnús, eða Maggi eins og hann var jafnan kallaður, var í annarri skrifstofunni en Herdís hafði hina skrifstofuna til umráða. „Skrifstofan sem Herdís hafði var stór og þar var stórt borð þar sem við héldum stjórnarfundi, trúnaðarráðsfundi og fleira og við kölluðum þetta nægtarborðið, hún Herdís fann það upp. Svo aftur á móti í stóra salnum þar héldum við stærri fundi eins og félags- og deildafundi.“ Mikil handavinna í kringum umsóknir Á þessum tíma þurfti að handvinna allt í tengslum við umsóknir og afgreiðslu þeirra og haldnir voru fundir þegar nýjar umsóknir bárust um atvinnuleysisbætur. „Við fylltum út blað með nafni og hvað hver átti að fá og fórum með það niður á bæjarskrifstofu. Þar var Tryggvi Björnsson starfandi, hann fór yfir allt saman og lét okkur hafa eina ávísun. Svo skrifuðum við út ávísanirnar á fólki