Sigrún Clausen, heiðursfélagi VLFA:
Leiddist aldrei í
frystihúsinu
Sigrún Clausen starfaði um árabil fyrir Verkalýðsfélag
Akraness á ýmsum vettvangi og er því hafsjór af fróðleik
þegar kemur að því að rifja upp sögu félagsins. Hún gegndi
stjórnarstörfum fyrir félagið í þrjá áratugi og var meðal
annars í aðalstjórn frá 1972 til ársins 2000. Hún varð fyrsti
formaður fiskvinnsludeildarinnar árið 1988 og sat um
árabil í stjórn sjúkrasjóðs allt til ársins 2002 svo eitthvað sé
nefnt. Árið 2002 var Sigrún jafnframt gerð að heiðursfélaga
Verkalýðsfélags Akraness.
Eftirminnileg námskeið fyrir fiskvinnslufólk
Eitt af því sem er Sigrúnu sérstaklega eftirminnilegt er þegar
hún var fengin til að hafa umsjón með námskeiðum fyrir
fiskvinnslufólk á Akranesi en fyrsta námskeiðið var haldið árið
1987. Sigrún var á þeim tíma í stjórn Starfsfræðslunefndar
fiskvinnslunnar sem stóð fyrir námskeiðunum. „Það
voru haldin ófá námskeið um allt mögulegt sem viðkom
fiskvinnslunni. Þetta var haft á skrifstofu félagsins og hinir
12
og þessir fengnir til að vera leiðbeinendur og fólk hafði
voðalega gaman af þessu. Ég sá um skipulagið á þessu,
raðaði niður í flokka og efninu eftir því. Það var svolítið
mikil vinna að undirbúa þetta. Einu sinni hittist þannig
á að Herdís Ólafsdóttir, starfsmaður skrifstofu félagsins,
veiktist þegar ég var að undirbúa námskeið. Þetta var rétt
fyrir jól og ég var að vinna á skrifstofunni að leysa hana
af og um leið að undirbúa námskeiðið. Ég mætti klukkan
7 á morgnana því námskeiðin byrjuðu klukkan 8 svo það
var nóg að gera í kringum þetta allt en mjög skemmtilegt.“
Í framhaldi af þessum námskeiðum var Sigrún einnig
fengin til að kenna hluta af hliðstæðum námskeiðum bæði
á Snæfellsnesi og í Reykjavík og var það dýrmæt reynsla.
Á þessum tíma var fiskvinnslan gríðarlega stór þáttur af
atvinnulífi Akurnesinga og ekki var um að ræða lítinn
hóp sem sat námskeiðin heldur útskrifuðust rúmlega 260
manns af fyrsta námskeiðinu. „Við héldum heljarmikið
hóf í tilefni af fyrstu útskriftinni. Þá voru frystihúsin þrjú
- HB, Heimaskagi og Haförninn. Þarna komu nokkrir
Alþingismenn og fulltrúi frá Sjávarútvegsráðuneytinu,
boðið var upp á kaffi og hvítvín og öllum afhent innrömmuð
skírteini. Þetta var voðalega gaman og mér leiddist heldur
aldrei í fiskvinnslunni, aldrei nokkurn tímann“ segir
Sigrún sem á augljóslega góðar minningar af starfi sínu í
frystihúsinu. „Ég hafði aldrei komið inn í frystihús á ævinni
þegar ég byrjaði að vinna þar árið 1969, ég hafði áður verið
í síldarsöltun en aldrei unnið í frystihúsi.“
Ýmislegt varðandi aðstöðu og réttindi fiskvinnslukvenna
kom Sigrúnu á óvart þegar hún hóf störf í frystihúsinu. Í
kjölfarið fór hún að láta til sín taka í ýmsum baráttumálum
í gegnum Verkalýðsfélagið en auk setu í stjórnum VLFA
sinnti hún meðal annars starfi trúnaðarmanns á vinnustað
sínum í samtals 19 ár. Einnig var hún þátttakandi í hinu
fræga kvennaverkfalli árið 1976 sem lesa má um hér á
opnunni.
Nóg að gera á skrifstofunni
Sigrún starfaði stundum í afleysingum á skrifstofu
Verkalýðsfélags Akraness og eins aðstoðaði hún þegar álagið
var mikið en skrifstofan var þá staðsett að Kirkjubraut 40.
Herdís Ólafsdóttir vann þar þá í hálfu starfi og Sigrún
minnist þeirrar vinkonu sinnar og samstarfskonu með
mikilli hlýju sem og annarra sem þar unnu á þessum tíma.
Oft var mikið um að vera á skrifstofunni, til dæmis í kringum
afgreiðslu atvinnuleysisbóta, en Sigrún segist hafa haft mjög
gaman af allri vinnu í kringum Verkalýðsfélag Zܘ[