Orlofshús félagsins
Orlofshús VLFA eru 9 talsins og hefur þeim fjölgað í takt við aukna eftirspurn, nýr bústaður var keyptur í Kjós árið 2011
og annar í Svínadal árið 2012. Orlofshús félagsins eru vel nýtt allt árið um kring og sjaldan fellur niður tímabil. Yfir
sumartímann eru húsin leigð út viku í senn, frá föstudegi til föstudags. Annað gildir yfir vetrartímann, þegar helgarnar eru
leigðar út í heilu lagi en annars hægt að bæta við aukanóttum eða taka lengri tímabil, allt eftir hentugleika. Á sumrin er
vikum úthlutað til félagsmanna eftir punktastöðu, en yfir vetrartímann gildir reglan: fyrstur kemur - fyrstur fær.
Bláskógar, Svínadal
Í Svínadal er vaxandi sumarhúsabyggð sem nýtur æ meiri vin
sælda. Svæðið er þægilega stutt frá þéttbýlinu en samt út úr
skarkalanum. Stutt er í sund að Hlöðum og gestir í húsinu geta
veitt í vötnunum þremur í Svínadal og spilað golf að Þórisstöðum
án endurgjalds. Hús félagsins að Bláskógum 12 í Svarfhólsskógi
er vel búið. Í því eru tvö herbergi og svefnloft. Búnaður er fyrir
8 manns. Húsið er með stórri glæsilegri verönd og heitum potti.
Efstiás,
Svínadal
Sumarið 2012 festi
Orlofssjóður VLFA
kaup á þessu glæsilega
orlofshúsi í Efstaási í
Eyrarskógi. Um er að
ræða rúmgott hús byggt árið 2002 sem stendur í fallegu umhverfi
í landi Kambshóls í Svínadal. Gestir í húsinu geta veitt í vötnu
num þremur í Svínadal og spilað golf að Þórisstöðum án endur
gjalds. Húsið er á tveimur hæðum, uppi eru tvö svefnherbergi og
eitt til viðbótar er á neðri hæð. Búnaður er fyrir 8 manns. Húsið
er með stórri glæsilegri verönd og heitum potti.
18
Húsafell í Borgarfirði
Það þarf vart að kynna Húsafell fyrir félagsmönnum. Staðurinn
hefur um árabil verið einn af vinsælustu sumar valarstöðum
d
landsmanna. Náttúrufegurðin er einstök og útivistarmöguleikar
eru óþrjótandi. Ótal góðra gönguleiða, golf, snjósleðaferðir og
fleira. Þá er sundlaugin ávallt vinsæl. Í húsi félagins að Ásenda 10
eru 2 svefnherbergi og svefnloft. Það er búið flestum þægindum
og búna