Sámur 1. tbl 40. árg 2015 | Page 10

í framboði til stjórnar Guðbjörg Guðmundsdóttir Ég heiti Guðbjörg Guðmundsdóttir og er sérfræðingur í hjúkrun krabbameinssjúklinga og starfa á Landspítalanum. Ég hef verið félagsmaður í HRFÍ frá 2004 þegar ég eignaðist fyrsta ættbókarfærða hundinn minn hann Ask sem er Golden Retriever. Áður átti ég óættbókarfærðan Golden Retriever í 12 ár. Árið 2009 eignaðist ég svo minn fyrsta Dvergschnauzer, Frosta og ég á fjóra hunda í dag. Ég hef tekið ötulan þátt í starfsemi deildanna sem ég tilheyri, þó meira innan Retrieverdeildar þar sem ég sat í stjórn þeirrar deildar í 6 ár, 3 sem ritari og 3 sem formaður. Ég hef sótt ýmis námskeið tengd hundum, bæði ræktunarnámskeið og ekki síður vinnutengd námskeið og má þar nefna hlýðninámskeið, hundafiminámskeið, sporanámskeið, retrievernámskeið sem og sleðahundanámskeið. Þá hef ég sótt fjöldan allan af fyrirlestrum um atferli hunda og hef starfað í skapgerðarmatshóp