Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 BR-DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 35
Tölvuleikir
Shadow of the Tomb Raider
Hér fá leikmenn tækifæri til að upplifa þá stund þegar Lara Croft
verður sú ævintýramanneskja sem henni var ætíð ætlað að vera.
Í Shadow of the Tomb Raider þarf Lara að sigrast á stórhættulegu skóglendi,
komast lifandi út úr hræðilegum grafhýsum og fara í gegnum sínar dimmustu
persónulegu stundir. Markmiðið er að bjarga heiminum frá heimsenda sem
Maya-ættbálkurinn hefur spáð að sé yfirvofandi!
Tegund: Hasarleikur
Kemur út á: PC, PS4 og Xbox One
PEGI aldurstakmark: 18+
Útgáfudagur: 14. september
Framleiðandi: Square-Enixfifa
Útgefandi: Sena
Nýjungar:
Leikmenn þurfa að draga fram lífið á einum
hættulegasta stað jarðarinnar, stað sem sam-
anstendur af skóglendi þar sem hættur leynast
við hvert fótmál og neðansjávarsvæðum sem
eru uppfull af hellum og hættusvæðum.
l
Leikmenn þurfa að nota umhverfi leiksins til
að sigrast á óvinum, fela sig í trjám og grasi, bera
á sig drullu til að dyljast og setja upp gildrur.
l
Grafhýsi leiksins eru ógnvænlegri en nokkru
sinni fyrr og þurfa leikmenn að taka á öllu sínu
til að lifa þau af, enda innihalda þau lífshættu-
legar þrautir auk annarra ógna.
l
Myndir mánaðarins
35