Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 BR-DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 34

Tölvuleikir NHL 19 Í NHL 19 leita EA Sports menn aftur í ræturnar og bjóða upp á íshokkí utandyra. Spilaðu á þeim völlum og þróaðu leikmanninn þinn yfir í að keppa í stærstu íshokkíhöllum heimsins. Búið er að taka grafíkina og hreyfingar leikmanna vel í gegn. Einnig geta spilarar leiksins núna spilað með eða keppt á móti rúmlega 200 af stærstu íshokkístjörnum allra tíma. Íshokkí hefur aldrei verið meira spennandi en í NHL 19. Tegund: Íshokkíleikur Kemur út á: PS4 PEGI aldurstakmark: 12+ Útgáfudagur: 14. september Framleiðandi: EA Sports Útgefandi: Sena Blake Lively mætti í bleiku fötunum á MTV- hátíðina sem haldin var í New York 20. ágúst. Eiginmaðurinn, Ryan Reynolds, hefur sjálfsagt ekki verið langt undan þótt hann sjáist ekki. 34 Myndir mánaðarins Sarah Jessica Parker ákvað hins vegar að fara í göngutúr í New York í þessum litríku fötum og bleikum skóm 22. ágúst. Hún vakti að vonum mikla athygli – eins og hún gerir reyndar alltaf. Á meðan var Evangeline Lilly stödd í Osaka í Japan þar sem hún var að kynna myndina Ant- Man and The Wasp fyrir þarlendum og klæddi sig að sjálfsögðu að hætti heimamanna.