Myndir mánaðarins Nóvember 2018 tbl. 298 Bíómyndir | Page 22
The Girl in the Spider’s Web
Fortíðin gleymir engu
Þau Lisbeth Salander og blaðamaðurinn Mikael Blomkvist
snúa aftur í bíó 9. nóvember og takast nú á við flókið glæpamál
og ráðgátu þar sem miskunnarlausir morðingjar, tölvuhakk-
arar, og spilltir útsendarar yfirvalda koma við sögu ásamt tví-
burasystur Lisbeth sem reynist hennar erfiðasti andstæðingur.
The Girl in the Spider’s Web er gerð eftir fjórðu
bókinni um þau Lisbeth Salander og Mikael
Blomkvist en hún kom út árið 2015 og er
eftir rithöfundinn David Lagercrantz sem var
fenginn til að halda áfram með söguna um
þessar persónur sem Stieg Larsson skapaði
í bókunum Karlar sem hata konur, Stúlkan
sem lék sér að eldinum og Loftkastalinn sem
hrundi, áður en hann féll frá árið 2005. Bókin,
sem heitir á sænsku Det som inte dödar oss
og þykir afar góð, kom út í íslenskri þýðingu
Höllu Kjartansdóttur undir heitinu Það sem ekki drepur mann. Við
förum ekki nánar út í söguþráðinn hér af tillitssemi við þá sem hafa
ekki lesið bókina enda er sagan uppfull af óvæntum atburðum og
fléttum sem langskemmtilegast er að láta koma sér á óvart ...
The Girl in the Spider’s Web
Spenna / Hasar / Ráðgáta
117
mín
Aðalhlutverk: Claire Foy, Sverrir Guðnason, LaKeith Stanfield, Sylvia
Hoeks, Stephen Merchant, Claes Bang, Christopher Convery, Synnøve
Macody Lund og Vicky Krieps Leikstjórn: Fede Alvarez
Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó, Sambíóið Kringlunni og
Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 9. nóvember
Enska leikkonan Claire Foy hefur nú tekið við hlutverki Lisbeth Salander.
Punktar ....................................................
Með hlutverk Lisbeth í þetta sinn fer enska leikkonan Claire Foy og
í hlutverki Mikaels er nú Íslendingurinn Sverrir Guðnason sem
síðast túlkaði Björn Borg snilldarlega í myndinni Borg McEnroe. Um
leikstjórnina sá hins vegar Fede Alvarez sem gerði m.a. myndina Evil
Dead og sendi síðast frá sér spennutryllinn magnaða, Don’t Breathe.
l
Þess má geta að til stendur að kvikmynda fimmtu bókina, Mannen
som sökte sin skugga, en hún nefnist á ensku The Girl Who Takes an
Eye for an Eye og Stúlkan sem gat ekki fyrirgefið í íslenskri þýðingu.
l
Myndin var að stórum hluta tekin upp í Stokkhólmi og nágrenni.
Veistu svarið?
Enska leikkonan Claire Foy hefur leikið í ýmsum
myndum, þ. á m. eiginkonu Neils Armstrong í First
Man. Segja má þó að hún hafi vakið einna mesta
athygli í sjónvarpsþáttunum Upstairs Downstairs
og sem Elízabet drottning í sjónvarpsþáttunum ...?
Sverrir Guðnason leikur helsta bandamann Lisbeth Salander, blaða-
manninn Mikael Blomkvist, sem glímir líka við sín eigin vandamál.
The Crown.
22
Myndir mánaðarins