Myndir mánaðarins Nóvember 2018 tbl. 298 Bíómyndir | Page 21
Overlord
Láttu óttann ekki yfirbuga þig
Overlord hefst á D-deginum svokallaða, 6. júní 1944, þegar
Bandamenn gerðu innrás í Normandy. Dagskipun sveitar fall-
hlífarhermanna, sem er ætlað að kasta sér út handan víglín-
unnar og gera einn af fjarskiptaturnum Þjóðverja óvirkan, fer
fyrir lítið þegar flugvél þeirra er sprengd í tætlur. Flestir her-
mannanna farast en þeirra sem lifa af bíður enn erfiðari raun.
Stríðs- og stórspennumyndin Overlord er í leikstjórn Julius Avery
sem sendi síðast frá sér hina þrælgóðu mynd Son of a Gun árið 2014.
Í þetta sinn vinnur hann með framleiðandanum J.J. Abrams og
færir okkur verulega hrollvekjuskotna mynd sem fengið hefur mjög
góða dóma þeirra sem kunna að meta slíkar myndir. Eftir magnað
upphafsatriði erum við stödd handan víglínu Þjóðverja þar sem
nokkrir af hermönnunum, sem náðu að henda sér út í fallhlíf þegar
flugvélin hrapaði, koma niður heilir á húfi. Þeirra skylda er að ljúka
verkinu sem þeim var falið, þ.e. að eyðileggja einn af fjarskiptaturn-
um Þjóðverja í litlum bæ þar sem allt er krökkt af nasistum. Útlitið er
því ekki gott fyrir okkar menn og ekki skánar það þegar þeir og
bandamenn þeirra uppgötva hús í bænum þar sem efnatilraunir
Þjóðverja hafa skapað nýja tegund af blóðþyrstum uppvakningum ...
Overlord
Stríð / Tryllir
110
mín
Aðalhlutverk: Jovan Adepo, Wyatt Russell, Mathilde Ollivier, Pilou
Asbæk, Jacob Anderson, Dominic Applewhite, Iain De Caestecker,
John Magaro og Bokeem Woodbine Leikstjórn: Julius Avery
Bíó: Sambíóin Álfabakka, Egilshöll, Kringlunni, Akureyri og Keflavík,
Laugarásbíó, Ísafjarðarbíó, Bíóhúsið Selfossi, Eyjabíó, Króksbíó og
Skjaldborgarbíó
Frumsýnd 9. nóvember
Overlord hefst á frábæru hasaratriði þegar flugvél fallhlífarhermann-
anna verður fyrir kúlnahríð með þeim afleiðingum að hún hrapar.
Punktar ....................................................
Sagan í myndinni er eftir leikstjórann og framleiðandann J.J. Abr-
ams (Super 8, Star Trek into Darkness, Star Wars: The Force Awakens,
10 Cloverfield Lane, Mission Impossible: Fallout) og Billy Ray sem
skrifaði m.a. handrit myndanna Flightplan, State of Play og Captain
Phillips. Billy tók síðan að sér að skrifa handritið að Overlord ásamt
Mark L. Smith sem á m.a. að baki handritin að Vacancy, The Hole og
Óskarsverðlaunamynd Alejandros G. Iñárritu The Revenant.
l
Wyatt Russell leikur hermanninn Ford sem hefur séð það svart áður.
Veistu svarið?
Wyatt Russell, sem leikur eitt aðalhlutverkið í
myndinni, hóf leikferil sinn aðeins tíu ára gamall
árið 1996 og hefur leikið í mörgum myndum.
Hann á ekki langt að sækja leiklistarhæfileikana
enda sonur heimsfrægra leikara. Hver eru þau?
Mathilde Ollivier sem franska andspyrnukonan Chloe og Jovan Adepo
sem hermaðurinn Boyce í einu af háspennuatriðum myndarinnar.
Kurt Russell og Goldie Hawn.
Myndir mánaðarins
21