Myndir mánaðarins Nóvember 2017 tbl. 286 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 18
Hneturánið 2
Stöndum saman!
Íkorninn Surlí og hin dýrin í Eikarbæ hafa haft það gott frá því
við hittum þau í samnefndri mynd árið 2014. Nú er tilveru
þeirra hins vegar ógnað þegar borgarstjórinn í Eikarbæ
ákveður að ryðja burt almenningsgarðinum sem þau búa í og
nota svæðið í staðinn undir skemmtigarð. Það má auðvitað
ekki gerast en hvað eiga Surlí og hin dýrin að taka til bragðs?
Teiknimyndin Hneturánið sem var frumsýnd sumarið 2014 kynnti
til sögunnar íkornann snjalla, Surlí, sem er reyndar líka dálítill klaufi
á köflum og frekar óheppinn í ofanálag. Surlí á sér tvö áhugamál,
annars vegar hnetur og hins vegar fleiri hnetur, og það gerir hann
ekki bara að sérfræðingi í hnetum heldur einnig að sérfræðingi í
alls kyns hnetureddingum. En ef áætlun borgarstjórans gengur eftir
sér Surlí fram á alvarlegan hnetuskort og því verður hann nú að
leggja áhugamálin til hliðar og einbeita sér í staðinn að því að fá
hin dýrin í garðinum, þar á meðal skapstóru músina Feng, til að sam-
einast í baráttunni við jarðýturnar – áður en það verður of seint.
Punktar ....................................................
Hneturánið 2 er að sjálfsögðu talsett á íslensku og eru það þau
Magnús Jónsson, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson,
Orri Huginn Ágústsson, Viktor Már Bjarnason, Þórhallur Sigurðsson,
Ævar Þór Benediktsson, Vaka Vigfúsdóttir, Selma Björnsdóttir,
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Albert Halldórsson sem tala fyrir
persónurnar, en leikstjóri talsetningar var Tómas Freyr Hjaltason.
l
Hneturánið 2
Teiknimynd
DVD
VOD
91
mín
Teiknimynd með íslensku tali Höfundar: Cal Brunker, Bob Barlen, og
Scott Bindley Útgefandi: Sena
9. nóvember
18
Myndir mánaðarins