Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 VOD og tölvuleikir | Page 10
Mid90s
Veldu þér framtíð
Stevie er 12 ára gamall strákur í Los Angeles árið 1995 sem fær
mikinn áhuga á hjólabrettaíþróttinni og kynnist í framhaldinu
nokkrum eldri strákum sem eru lengra komnir í henni en hann
og leggja fyrir sig ýmsar áhættuþrautir. En um leið og Stevie
reynir að ná tökum á tækninni kynnist hann nýrri veröld og
veruleika sem ef til vill er ekki hollur fyrir strák á hans aldri.
Mid90s er fyrsta mynd leikarans góðkunna Jonah Hill sem leikstjóra
og þykir hann fara heldur betur vel af stað í því hlutverki. Jonah skrif-
ar einnig handritið sem að hans sögn byggir að miklu leyti á hans
eigin reynslu en er einnig innblásið af myndum eins og Kids (1995),
This Is England (2006), Ratcatcher (1999) og The Sandlot (1993).
Til að forðast misskilning þá er þetta ekki saga um hjólabrettaíþrótt-
ina þótt hún sé vissulega áberandi heldur fyrst og fremst uppvaxtar-
saga hins 12 ára Stevies, byggð á þeim alvarlega undirtón sem lífið
sjálft er en um leið full af hlýju og sérlega góðum húmor þar sem
viðhorfin og andrúmsloftið er eins og það var í Los Angeles árið
1995 þegar Jonah var sjálfur 12 ára og sleit þar barnsskónum ...
Mid90s
Drama
Leikstjóri og handritshöfundur Mid90s, Jonah Hill, ræðir hér við
þá Lucas Hedges og Sunny Suljic við tökur á einu atriði mynd-
arinnar en þeir Lucas og Sunny leika bræðurna Ian og Stevie.
85
VOD
mín
Aðalhlutverk: Sunny Suljic, Na-Kel Smith, Olan Prenatt, Gio Galicia,
Lucas Hedges, Katherine Waterston, Ryder McLaughli og Alexa Demie
Leikstjórn: Jonah Hill Útgefandi: Myndform
1. nóvember
Punktar ....................................................
HHHH 1/2 - Variety HHHH 1/2 - H. Reporter HHHH 1/2 - E. W.
HHHH - IndieWire HHHH - Empire HHHH - The Telegraph
HHHH - Screen HHH 1/2 - Rolling Stone HHH 1/2 - N.Y. Times
Mid90s hefur eins og sést hlotið mjög góða dóma gagnrýnenda,
ekki síst fyrir hvernig Jonah Hill tekst frábærlega að endurskapa
andrúmsloftið í Los Angeles árið 1995. Hafa margir þeirra kallað
myndina „meistaraverk“ og um leið „eina bestu mynd ársins 2018“.
l
Veistu svarið?
Aðalpersóna Mid90s, Stevie, er leikin af hinum
tólf ára Sunny Suljic sem á að baki leik í ýmsum
öðrum þekktum myndum en er ekki síður þekktur
í tölvuleikjaveröldinni eftir að hafa ljáð Atreusi rödd
sína í einum vinsælasta leik ársins 2018. Hvaða leik?
Vinahópurinn sem myndin fjallar að miklu leyti um samanstendur af
þeim Ray, Reuben, „Fuckshit“ og „Fourth Grade“, auk Stevies sjálfs.
God of War.
10
Myndir mánaðarins