Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 Bíóhluti | Page 29
Den tid på året
Gleðileg jól ... eða þannig
Jólin eru gengin í garð og það er ekkert leyndarmál að Katrine
kvíður mikið hinu árlega jólaboði fjölskyldunnar sem í þetta
sinn kom í hennar hlut að halda. Ekki það að Katrine fari ekki
létt með að reiða fram jólakrásir fyrir fjórtán gesti heldur veit
hún sem er að eins og venjulega mun eitthvað koma upp á.
Den tid på året er sætsúrt gamandrama þar sem húmorinn verður
dálítið dökkur á köflum enda eru fjölskyldumeðlimirnir af ýmsu
sauðahúsi og eiga það til að láta flest flakka þegar sá gállinn er á
þeim. Mest kvíðir Katrine þó fyrir að fá systur sína í heimsókn, en hún
er nýkomin úr afvötnun, og þá ekki síður fráskilda foreldra sína sem
nota hvert tækifæri sem gefst til að jagast hvort í öðru, öllum öðrum
til lítillar skemmtunar. Þess utan er dóttir hennar í uppreisnarhug ...
Leikhópur myndarinnar ásamt Papriku Steen leikstjóra sem
jafnframt leikur gestgjafann í jólaboðinu, hina kvíðnu Katrine.
Den tid på året
Punktar ....................................................
Gamandrama
103
mín
Aðalhlutverk: Paprika Steen, Jacob Lohmann, Lars Knutzon, Lars
Brygmann, Sofie Gråbøl, Fanny Bornedal, Bodil Lassen, Patricia
Schumann og Karen-Lise Mynster Leikstjórn: Paprika Steen
Bíó: Háskólabíó
Frumsýnd 29. nóvember
Fyrir utan að leikstýra og leika eitt af aðalhlutverkunum skrifaði
Paprika Steen einnig drögin að sögu myndarinnar en fékk svo
rithöfundinn og leikritaskáldið Jakob Weis til að skrifa handritið.
l
Den tid på året var tilnefnd til sex Robert-verðlauna og sjö Bodil-
verðlauna, þ. á m. fyrir besta leik í bæði aðal- og aukahlutverkum
karla og kvenna, fyrir búninga og sem besta mynd ársins. Myndin
hlaut síðan Bodil-verðlaunin fyrir besta handritið.
l
Paprika Steen hefur um árabil skipað sér í hóp með bestu og vin-
sælustu leikkonum Dana og hlotið fjölmörg verðlaun, þ. á m. fimm
Bodil- og Robert-verðlaun af átján tilnefningum. Den tid på året er
svo þriðja mynd hennar sem leikstjóra en þær fyrri voru Lad de små
børn ... frá árinu 2004 og Til døden os skiller sem hún gerði árið 2007.
l
Lars Knutzon og Lars Brygmann leika þá Poul og Torben
sem virðast eiga einhver mál óuppgerð sín á milli.
Veistu svarið?
Sofie Gråbøl leikur stórt hlutverk í Den tid på året en
hún hefur eins og Paprika Steen verið á meðal þekkt-
ustu leikkvenna Dana um árabil og hlotið fjölmörg
verðlaun. Sennilega er hún þó þekktust fyrir að leika
lögreglukonuna Söruh Lund í ... hvaða þáttum?
Sofie Gråbøl og Paprika Steen leika systurnar Barböru og Katrine, en
þessi mynd var tekin af þeim fyrir upptöku á einu atriði myndarinnar.
Forbrydelsen.
Myndir mánaðarins
29