Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 Bíóhluti | Page 28
21 Bridges
Hver er á eftir hverjum?
Andre Davis er lögregluforingi í New York sem kvöld eitt er
kallaður til vettvangsrannsóknar þar sem átta lögreglumenn
hafa verið skotnir til bana með öflugum vélbyssum. Til að
handsama þá seku grípur Andre til þess ráðs að loka Man-
hattan fyrir allri umferð og leggur um leið starf sitt undir að
honum takist að finna morðingjana áður en nóttin er úti.
Þegar þetta er skrifað er hvergi búið að sýna 21 Bridges en allt
bendir til að hér sé um hörkumynd að ræða, bæði kraftmikil stikl-
an og svo aðstandendur myndarinnar sem staðið hafa að gerð
nokkurra vinsælustu Marvel-mynda síðustu ára. Ekki skemmir fyrir
að sagan er marglaga því um leið og leitin að morðingjunum hefst
áttar Andre sig á því að á bak við morðin hangir meira á spýtunni
en sýnist í fyrstu því ýmislegt bendir til að hinir látnu hafi hreint og
beint verið leiddir í dauðagildru. En af hverjum og hvers vegna?
21 Bridges
Chadwick Boseman leikur lögreglumanninn Andre Davis sem er
staðráðinn í að láta morðingja átta lögreglumanna ekki sleppa.
Spennumynd / Hasar
99
mín
Aðalhlutverk: Chadwick Boseman, J.K. Simmons, Sienna Miller,
Taylor Kitsch, Keith David, Stephan James, Victoria Cartagena, Jamie
Neumann, Louis Cancelmi og Toby Hemingway Leikstjórn: Brian Kirk
Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 22. nóvember
Punktar ....................................................
21 Bridges er framleidd af Chadwick Boseman sjálfum og þeim
bræðrum Anthony og Joe Russo sem gerðu m.a. Avenger-mynd-
irnar Infiniti War og Endgame og Captain America-myndirnar Civil
War og Winter Soldier. Eins og flestir vita lék Chadwick Boseman
T’Challa/Svarta pardusinn í Black Panther og í Avengers-myndunum
... og mun leik hann á ný í Black Panther II.
l
Leikstjóri myndarinnar er Brian Kirk sem hefur aðeins sent frá sér
eina bíómynd áður, myndina Middletown árið 2006, en er hokinn af
reynslu við gerð sjónvarpsþátta eins og Game of Thrones, The
Tudors, Luther, Boardwalk Empire, Penny Dreadful og Murphy’s Law.
l
Sienna Miller leikur helsta aðstoðarmann Andres Davies.
Veistu svarið?
Hinn stórskemmtilegi leikari og Óskarsverðlauna-
hafi J.K. Simmons sem er í uppáhaldi hjá mörgum
og klikkar aldrei leikur stórt hlutverk í myndinni
sem einn af lögregluforingjum Manhattan-borgar.
En fyrir leik í hvaða mynd hlaut hann Óskarinn?
Aðalframleiðendur myndarinnar ásamt Chadwick Boseman
eru bræðurnir Joe og Anthony Russo sem hafa gert það gott á
undanförnum árum í framleiðslu og leikstjórn Marvel-myndanna.
Whiplash.
28
Myndir mánaðarins