Dragged Across Concrete
Stigið yfir línuna
Þegar lögreglumennirnir Brett Ridgeman og Anthony Luras-
etti (Mel Gibson og Vince Vaughn) eru sendir í sex mánaða
launalaust „leyfi“ fyrir að hafa gengið fullharkalega fram
við síðustu handtöku ákveða þeir að gerast sjálfir ræningjar,
enda hafa þeir bæði kunnáttuna og þekkinguna sem til þarf!
Dragged Across Concrete er þriðja mynd leikstjórans og handritshöf-
undarins S. Craigs Zahler en þær fyrri voru hinar fantagóðu Bone
Tomahawk og Brawl in Cell Block 99. Hér segir hann okkur magnaða
sögu af tveimur lögreglumönnum í ónefndri borg sem lenda í mikl-
um fjölmiðlastormi með tilheyrandi samfélagsmiðlaumræðu þegar
myndband af síðustu handtöku þeirra fer á flug, en það þykir sýna
þá sem algera fanta. Í kjölfarið eru þeir sendir í launalaust leyfi en á
því hafa þeir engin efni, sérstaklega ekki sá eldri þeirra, Brett. Hann
ákveður því að nýta sér þekkingu sína á undirheimunum til að kom-
ast yfir góss glæpamanna og svo fer að sá yngri, Anthony, gengur í
lið með honum. Hvorugur gerir sér grein fyrir afleiðingunum ...
Dragged Across Concrete
Glæpasaga / Spenna / Hasar
Lögreglumennirnir Anthony og Brett, sem eru leiknir af Vince Vaughn
og Mel Gibson, ákveða að snúa við blaðinu þegar þeir eru sendir í
launalaust leyfi og nýta sérfræðiþekkingu sína í eigin ágóðaskyni.
159
mín
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Vince Vaughn, Jennifer Carpenter,
Laurie Holden, Don Johnson, Tori Kittles, Michael Jai White, Thomas
Kretschmann og Udo Kier Leikstjórn: S. Craig Zahler Bíó: Smárabíó,
Háskólabíó, Borgarbíó Akureyri og Selfossbíó
Frumsýnd 29. mars
Punktar ....................................................
Þeir Mel Gibson og Vince Vaughn unnu eins og kunnugt er saman
við gerð myndarinnar Hacksaw Ridge og það var við það tækifæri
sem Vince sýndi Mel handritið að Dragged Across Concrete. Vince,
sem hafði síðast leikið aðalhlutverkið í mynd S. Craigs Zahler, Brawl
in Cell Block 99, hafði þá þegar tekið að sér hlutverk Anthonys í
þessari mynd og segir sagan að Mel hafi hrifist mjög af handritinu
og ákveðið strax að taka að sér hlutverk hins reynda Bretts á móti
honum. Þess má og geta að þau Jennifer Carpenter, Don Johnson
og Udo Kier sem leika í Dragged Across Concrete léku einnig öll stór
hlutverk í Brawl in Cell Block 99 og að annar mannskapur sem kom að
gerð þeirrar myndar er einnig nánast sá sami og gerir þessa mynd.
l
Veistu svarið?
Jennifer Carpenter sem fer með annað aðal-
kvenhlutverkið í myndinni á móti Laurie Holden
er mörgum að góðu kunn en segja má að hún hafi
fyrst slegið í gegn í vinsælum sjónvarpsþáttum
sem hófu göngu sína árið 2006. Hvaða þáttum?
Dexter.
Myndir mánaðarins
23