Captive State
Allar byltingar byrja á neista
Í tiltölulega náinni framtíð hafa dularfullar „geimverur“ tekið
völdin á Jörðu og fengið margt fólk í lið með sér. Á móti kemur
að þeir eru líka margir sem geta ekki sætt sig við þessa nýju
alheimsstjórn og leita því leiða til að velta geimverunum úr
sessi. Til þess þarf þó mikla kænsku ... og enn meira hugrekki.
Þeir eru margir sem kunna að meta góðar framtíðar- og vísinda-
skáldsögur og vonandi á Captive State, nýjasta mynd leikstjórans
Ruperts Wyatt sem gerði m.a. myndirnar The Escapist, The Gambler
og hina þrælgóðu Rise of the Planet of the Apes, eftir að hitta beint
í mark hjá þeim hópi. Þetta er ein af þeim myndum þar sem ekki
má greina væntanlegum áhorfendum of mikið frá framvindunni
til að skemma ekki fyrir upplifuninni en til viðbótar því sem kemur
fram hér í innganginum má þó segja að myndin gerist í Chicago
og er sagan fyrst og fremst sögð frá sjónarhóli lögreglumannsins
Mulligans (John Goodman) sem hefur einsett sér að safna liði gegn
geimverunum öflugu þótt það gæti hæglega kostað hann lífið ...
Captive State
Tryllir / Vísindaskáldsaga
John Goodman leikur lögreglumanninn Mulligan sem fær m.a. í lið
með sér hinn unga Gabriel (Ashton Sanders), en hann er sonur
manns sem gerði uppreisn gegn geimverunum en féll í valinn.
109
mín
Aðalhlutverk: John Goodman, Ashton Sanders, Machine Gun Kelly,
Vera Farmiga, D.B. Sweeney, Alan Ruck, Kevin Dunn og Jonathan
Majors Leikstjórn: Rupert Wyatt Bíó: Smárabíó, Háskólabíó og
Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 15. mars
Punktar ....................................................
Leikstjóri myndarinnar, Rupert Wyatt, skrifaði einnig söguna og
handritið ásamt eiginkonu sinni, Ericu Beeney.
l
l
Captive State er öll tekin upp þar sem hún gerist, þ.e. í Chicago.
Tónlistarmaðurinn Richard Colson Baker, sem er betur þekktur
sem Machine Gun Kelly, eða MGK, leikur stórt hlutverk í myndinni.
l
Þeir sem vilja vita meira ættu að sjá hörkugóðar stiklurnar en gætt
hefur verið að því að láta þær ekki segja of mikið frá því sem gerist.
l
Machine Gun Kelly og Ashton Sanders í hlutverkum sínum.
Veistu svarið?
John Goodman ber nafn með rentu enda hefur
þessi skemmtilegi leikari ætíð staðið fyrir sínu í
þeim fjölmörgu kvikmyndum sem hann hefur
leikið í síðastliðin 32 ár eða svo. En í hvaða mynd
Coen-bræðra sló hann fyrst í gegn árið 1987?
Raising Arizona.
Myndir mánaðarins
19