Britt-Marie var hér
Byrjað upp á nýtt
Britt-Marie er 63 ára kona sem þolir hvorki óhreinindi á heimili
sínu né óreglu í hirslum þess og myndu margir segja að hún
væri með tiltektar- og þrifnaðaræði. Þegar hún kemst að því
að maðurinn hennar til 40 ára hefur verið henni ótrúr ákveður
hún að fara frá honum og finna sér sína fyrstu vinnu á ævinni.
Sagan um Britt-Marie er eftir sænska rithöfundinn Fredrik Backman
sem sló í gegn þegar hann sendi frá sér sína fyrstu bók, Maður sem
heitir Ove, árið 2012. Síðan þá hefur hann skrifað einar sjö bækur,
en Britt-Marie var hér kom út árið 2014 og er hans fjórða bók.
Það er ekki nóg með að Britt-Marie yfirgefi eiginmanninn heldur
flytur hún til nýs bæjar sem heitir því virðulega nafni Borg en er
samt hálfgert krummaskuð. Segja sumir að það eina sem sé gott við
bæinn sé vegurinn sem liggur út úr honum. Britt-Marie tekur samt
fyrsta starfinu sem henni býðst en það felst í að taka að sér tilfallandi
verk í svokallaðri félagsmiðstöð bæjarins, þ. á m. þrif. Það fer þó
svo að hún leiðist út í það ólíklega hlutverk að þjálfa nokkra unga
fótboltastráka sem geta reyndar lítið í fótbolta en bæta það upp
með ótakmörkuðum áhuga og elju sem Britt-Marie kann að meta ...
Britt-Marie var hér
Gamandrama
94
Eftir að hafa helgað eiginmanni sínum og uppeldi barna þeirra líf
sitt ákveður Britt-Marie að pakka saman og byrja upp á nýtt. Það er
hin margverðlaunaða leikkona Pernilla August sem leikur Britt-Marie.
mín
Aðalhlutverk: Pernilla August, Vera Vitali, Peter Haber, Malin
Levanon, Anders Mossling, Olle Sarri, Mahmut Suvakci og Lancelot
Ncube Leikstjórn: Tuva Novotny Bíó: Laugarásbíó, Háskólabíó og
Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 15. mars
Punktar ....................................................
Britt-Marie var hér er önnur mynd Tuvu Novotny sem leikstjóra en
sú fyrsta, Blindsone, fékk afar góða dóma og mörg verðlaun. Tuva
er reyndar mun þekktari sem leikkona og lék t.a.m. stór hlutverk í
myndunum Kongens nei, Borg McEnroe og Annihilation.
l
Eiginmaður Britt-Marie er leikinn af Peter Haber sem lék m.a.
lögreglumanninn Martin Beck í samnefndum sjónvarpsþáttum.
Veistu svarið?
Pernilla August hóf leiklistarferil sinn árið 1979
og sló svo fyrst í gegn í mynd Ingmars Bergman,
Fanny och Alexander, árið 1982. En hver varð fyrsta
enskumælandi myndin sem hún lék í?
(Vísbending: hún lék ömmu Lukes Skywalker.)
Star Wars: Episode I - The Phantom Menace.
16
Myndir mánaðarins
Leikstjóri myndarinnar, Tuva Novotny, og aðalleikkonan Pernilla August.