Myndir mánaðarins MM Júlí 2019 DVD VOD BR | Page 17
Pet Sematary – Breakthrough
Stundum er best að gera ekkert
Þegar Louis Creed fær stöðu stjórnanda við sjúkrahús í Maine-ríki flytur
hann ásamt fjölskyldu sinni í hús sem stendur við bæinn Ludlow. Framtíðin
virðist björt eða allt þar til voveiflegur atburður verður til þess að Louis
grípur til úrræðis sem á eftir að gera illt verra – í orðsins fyllstu merkingu!
Pet Sematary er gerð eftir einni af mörgum frægum hrollvekjum Stephens King
og má því ætla að margir þekki atburðarásina. Hins vegar eru þeir líka örugglega
margir sem gera það ekki og af tillitssemi við þá rekjum við söguna ekki frekar
hér enda er auðvitað langskemmtilegast að láta það sem gerist í henni koma sér
á óvart. Við hvetjum að sjálfsögðu alla alvöru hrollvekjuunnendur til að sjá hana!
Punktar ..................................................................
HHHH 1/2 - The Wrap HHHH - Entert. Weekly HHHH - The Guardian
HHHH - IGN HHHH - Total Film HHH 1/2 - I.Wire HHH - Time Out
HHH 1/2 - ReelViewsHHH 1/2 - Rolling Stone HHH 1/2 - H. Reporter
Þetta er í annað sinn sem Pet
Sematary er kvikmynduð en fyrri
myndin var frumsýnd í apríl 1989,
eða fyrir réttum 30 árum, og fékk
ágæta dóma á sínum tíma. Bókin sjálf
kom upphaflega út 1983, var fjórt-
ánda bók Stephens King og hefur æ
síðan verið talin ein hans besta.
l
101
VOD
mín
Aðalhlutverk: Jason Clarke, John Lithgow og Amy Seimetz
Leikstjórn: Kölsch og Widmyer Útg.: Síminn og Vodafone
17. júlí
Tryllir
Þess má geta að ástæðan fyrir því að
orðið „cemetery“ er stafsett ranglega
sem „sematary“ í heiti sögunnar er sú
að þannig skrifa krakkarnir sjálfir heiti
grafreitsins sem verður miðpunktur-
inn í atburðarás hennar.
l
Creed-fjölskyldan getur ekki gert sér
í hugarlund hvað bíður hennar.
Saga af sönnu kraftaverki
Smith-hjónin Brian og Joyce búa ásamt 14 ára ættleiddum syni sínum, John,
í bænum Lake St. Louis í Missouri-ríki Bandaríkjanna. Dag einn fer John
ásamt tveimur skólafélögum sínum í óleyfi út á ótraustan ís sem brestur
undan þunga þeirra með þeim afleiðingum að John drukknar – eða hvað?
Félögum Johns tekst að komast aftur upp á ísinn og kalla á hjálp sem berst skömmu
síðar, en samt of seint því John hefur þegar verið í a.m.k 15 mínútur undir ísnum og
er hjarta hans hætt að slá þegar björgunarmenn ná honum upp. Lífgunartilraunir
bera ekki árangur og því liggur það beinast við að úrskurða hann látinn á sjúkra-
húsinu sem hann er fluttur á. En þá gerist nokkuð sem á eftir að breyta öllu ...
Punktar ..................................................................
HHHH - N.Y. Times HHH 1/2 - L.A. Times HHH 1/2 - S.F. Chronicle
HHH - Chicago Tribune HHH - Hollywood Reporter HHH - The Wrap
VOD
116
mín
Aðalhl.: Topher Grace, Josh Lucas, Chrissy Metz og Mike Colter
Leikstjórn: Roxann Dawson Útgefandi: Síminn og Vodafone
Sannsöguleg
18. júlí
Smith-fjölskyldan er leikin af þeim Josh Lucas, Chrissy Metz og Marcel Ruiz.
Myndir mánaðarins
17