Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 37
The Riot Club – Molang
Bragðið af valdinu
Þeir Alistair og Miles eru nýliðar í Oxford-háskóla sem er boðið að taka sæti
í tíu manna skólaklúbbi sem kallast The Riot Club, en í hann geta eingöngu
forríkir nemendur gengið. Á einu örlagaríku drykkjukvöldi munu með-
limir þessa klúbbs síðan sýna fram á úr hverju þeir eru raunverulega gerðir.
The Riot Club er hörkumynd þar sem nokkrir af bestu bresku leikurum ungu kyn-
slóðarinnar fara á kostum í krefjandi hlutverkum undir styrkri leikstjórn danska
leikstjórans Lone Scherfig sem gert hefur margar góðar myndir í gegnum árin.
Segja má að hér sé skyggnst á bak við tjöldin í veröld einstaklinga sem eru fæddir
til forréttinda í krafti auðs og valda foreldra sinna og telja sig geta komist upp
með hvað sem er. En hvað gerist þegar þeir ganga nokkrum skrefum of langt?
Punktar ..................................................................
HHHH - New York Times HHHH - Variety HHHH - The Guardian
HHH - Time Out HHH - Empire HHH - Telegraph HHH - CineVue
l Myndin er byggð á leikverkinu Posh
sem var frumsýnt árið 2010 og hefur
notið mikilla vinsælda á Englandi og
víðar . Það er eftir Lauru Wade sem
einnig skrifar handrit myndarinnar
en það var tilnefnt sem besta handrit
ársins af samtökum breskra hand-
ritsgerðarmanna.
107
VOD
mín
Aðalhlutv.: Sam Claflin, Max Irons, Douglas Booth og Holliday
Grainger Leikstjórn: Lone Scherfig Útgefandi: Myndform
Spennudrama
28. desember
Þegar Posh var frumsýnt töldu
margir sig sjá líkindi með stráka-
klúbbnum sem það fjallar um og
hinum raunverulega Bullingdon-
klúbbi í Oxfordskóla sem eingöngu
karlmenn fá inngöngu í.
l
Í hinn tíu manna klúbb The Riot Club
komast eingöngu forríkir nemendur.
Molang og Piu Piu lenda í ævintýrum
Molang er lítil kanínustelpa sem lendir ásamt besta vini sínum í mörgum
litríkum og skemmtilegum ævintýrum í þessum þriggja og hálfrar mínútna
þáttum sem eru fyrst og fremst ætlaðir allra yngsta aldurshóp áhorfenda.
Molang eru kóreskir teiknimyndaþættir sem hafa um
nokkurra ára skeið notið mikilla vinsælda á sjónvarps-
stöðvum víða um heim, þar á meðal hér á landi á RÚV.
Segja má að þættirnir einkennist af gleði, hamingju og
innilega skemmtilegum húmor sem nær til yngsta
aldurshópsins auk þess sem vinátta aðalpersónanna,
Molang og hænuungans Piu Piu, er bæði sönn og tær.
VOD
65
mín
Teiknimyndir með íslensku tali um ævintýri Molang
og Piu Piu Útgefandi: Myndform
Barnaefni
28. desember
Myndir mánaðarins
37