Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 32
A Simple Favor
Hvað kom fyrir Emily?
Stephanie er vídeóbloggari í smábæ í Connecticut sem fjallar
í bloggi sínu um ýmislegt sem viðkemur mömmum, uppeldi
og heimilishaldi. Þegar einn af íbúum bæjarins, hin fagra en
dularfulla Emily, sem Stephanie hafði kynnst nokkrum vikum
fyrr, hverfur sporlaust, ákveður hún að rannsaka málið sjálf.
A Simple Favor er byggð á samnefndri bók eftir
rithöfundinn Darcey Bell sem kom út í ársbyrjun
2017 og vakti strax það mikla athygli að kvik-
myndarétturinn að henni seldist eins og skot.
Ástæðan er fyrst og fremst sú að hér er um afar
snjalla fléttu að ræða þar sem ekkert er eins og
það sýnist í fyrstu og endar sagan á vægast sagt
óvæntan hátt. Af þeim sökum er engum greiði
gerður með því að fara nánar út í atburðarásina
enda er langskemmtilegast að sjá svona fléttu-
myndir án þess að vita of mikið og leyfa frekar framvindunni að
koma sér algerlega á óvart. Það gerir þessi saga svo sannarlega ...
A Simple Favor
Sakamálamynd / Ráðgáta
DVD
Anna Kendrick leikur vídeóbloggarann Stephanie, en hún og nýjasta
vinkona hennar, Emily, sem Blake Lively leikur, eru gerólíkar, bæði að
upplagi og í öllum háttum. Þegar Emily hverfur sporlaust eftir að hafa
hringt og beðið Stephanie að gera sér greiða hefst alveg mögnuð flétta.
117
VOD
mín
Aðalhlutverk: Blake Lively, Anna Kendrick, Henry Golding, Rupert
Friend, Ian Ho, Joshua Satine, Eric Johnson, Jean Smart og Linda
Cardellini Leikstjórn: Paul Feig Útgefandi: Myndform
20. desember
Punktar ....................................................
HHHH 1/2 - IGN HHHH 1/2 - Chicago Sun-Times HHHH - E.W.
HHHH - Observer HHHH - Film Threat HHHH - Total Film
HHH 1/2 - Variety HHH 1/2 - R. Stone HHH 1/2 - R.Ebert.com
Segja má að leikstjóri myndarinnar, Paul Feig, skipti hér um gír en
hann er þekktastur fyrir gamanmyndir sínar á undanförnum árum,
t.d. Bridesmaids, The Heat, Spy og Ghostbusters: Answer the Call.
l
Líf vídeóbloggarans Stephanie umturnast þegar Emily hverfur,
enda ákveður hún að komast til botns í málinu upp á eigin spýtur.
Veistu svarið?
Blake Lively hefur sýnt að hún er ákaflega fjölhæf
leikkona, en allar götur frá því að hún og Ryan
Reynolds giftust hefur samt fjölskyldan og barna-
uppeldið átt hug hennar nánast allan. En í hvaða
þekktu sjónvarpsþáttum sló hún í gegn 2007?
Eiginmaður Emily, Sean, er leikinn af Henry Golding.
Gossip Girl.
32
Myndir mánaðarins