Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 16

The Happytime Murders Þetta er ekkert grín Þegar einhver tekur upp á því að myrða starfsfólk brúðu- myndaþáttanna The Happytime Gang eitt af öðru fær lög- reglukonan Connie Edwards málið til rannsóknar ásamt fyrr- verandi lögreglufélaga sínum, Philip Phillips, en eitt fyrsta fórnarlamb brúðufjöldamorðingjans var einmitt bróðir hans. The Happytime Murders gerist í veröld þar sem brúður eins og þær sem við þekkjum sem prúðuleikarana, en urðu fyrst vinsælar í barnaþáttum eins og Sesame Street, eru í raun lifandi borgarar sem njóta þó ekki sömu réttinda og þeir sem eru af holdi og blóði. Þau Connie og Philip taka þegar til við rannsókn málsins og eru áður en langt líður komin með margar vísbendingar sem undir venjulegum kringumstæðum ættu að beina þeim á rétta slóð. Vandamálið er hins vegar að sú slóð liggur beint til Philips sjálfs ... The Happytime Murders Melissa McCarthy leikur lögreglukonuna Connie Edwards sem fær fyrrverandi lögreglubrúðuna og nú einkaspæjarann Philip Phillips í lið með sér þegar einhver byrjar að myrða brúður eins og hann í massavís. Grín / Svartur húmor DVD 98 VOD mín Aðalhlutverk: Melissa McCarthy, Elizabeth Banks, Bill Barretta, Maya Rudolph, Leslie David Baker, Joel McHale, Michael McDonald og Jimmy O. Yang Leikstjórn: Brian Henson Útgefandi: Myndform 6. desember Punktar .................................................... HHHH - IGN HHH 1/2 - Hollywood Reporter HHH - CineVue HHH - Boston Globe HHH - ReelViews HHH - Entert. Weekly Leikstjóri myndarinnar er Brian Henson en hann er einn af fimm börnum Jims Henson sem skapaði prúðuleikarana, fyrst fyrir barna- þættina Sesame Street og síðan í sjálfstæðum þáttum, The Muppet Show, sem urðu feikivinsælir um allan heim og eru enn. Þess má geta að Brian stjórnar einnig og talar fyrir krabbann í myndinni. l Sá sem talar fyrir og stjórnar Philip Phillips er Bill Barretta en hann hefur verið fastaleikari í prúðuleikurunum í áratugi og talar m.a. fyrir sænska kokkinn, Rowl, dr. Teeth, Bobo og risarækjuna Pepe. l Melissa McCarthy er að venju í essinu sínu í myndinni en hún og eiginmaður hennar, Ben Falcone, eru einnig framleiðendur hennar. Veistu svarið? Grínleikkonan Maya Rudolph leikur stór hlutverk í The Happytime Murders og er þetta í þriðja sinn sem hún og Melissa McCarthy leika í sömu myndinni því Maya lék einnig í síðustu mynd Melissu, Life of the Party, og svo í myndinni ...? Elizabeth Banks leikur Jenny, einu mannlegu persónuna í The Happy- time-genginu sem einhver hefur ákveðið að senda yfir móðuna miklu. Bridesmaids. 16 Myndir mánaðarins