Myndir mánaðarins Maí 2017 tbl. 280 bíóhluti | Page 28

Pirates of the Caribbean : Salazar ’ s Revenge
Jack Sparrow skal deyja !
Jack Sparrow lendir nú í sínum mesta lífsháska þegar illskeyttasti óvinur hans , hinn grimmi Salazar skipstjóri , flýr úr fordyri helvítis , staðráðinn í að ráða niðurlögum allra sjóræningja og þá sérstaklega Jacks Sparrow sem bar ábyrgð á dauða hans .
Sagan í þessari fimmtu og síðustu mynd um ævintýri hins eitursnjalla sjóræningja Jacks Sparrow teygir sig langt aftur í tímann eða allt til þess þegar hann sem ungur maður tókst á við hinn miskunnarlausa Salazar skipstjóra sem hafði sett sér það markmið að sökkva öllum sjóræningjaskipum og koma um leið hverjum einasta sjóræningja fyrir kattarnef . Salazar hafði orðið vel ágengt í þessari köllun sinni þegar hann hitti fyrir ofjarl sinn , Jack Sparrow , sem sneri á hann og bjó honum sjálfum og áhöfn hans þau örlög sem hann ætlaði sjóræningjunum : Að eyða eilífðinni í helvíti . Allar götur síðan hefur Salazar beðið eftir tækifæri til að hefna sín – og nú er komið að því ...
Salazar ’ s Revenge Ævintýri / Gamanmynd
Aðalhlutverk : Johnny Depp , Geoffrey Rush , Javier Bardem , Orlando Bloom , Keira Knightley , Kaya Scodelario og Brenton Thwaites Leikstjórn : Joachim Rønning og Espen Sandberg Bíó : Sambíóin Álfabakka , Kringlunni , Egilshöll , Akureyri og Keflavík , Laugarásbíó , Selfossbíó , Ísafjarðarbíó , Bíóhöllin Akranesi , Króksbíó og Skjaldborgarbíó
128 mín
Frumsýnd 25 . maí
Jack Sparrow mætir til leiks á ný og þarf nú að takast í annað sinn á við sinn langversta og grimmasta óvin , Salazar kaftein .
Punktar .................................................... l Á meðal nýrra persóna í sögunni eru nýir bandamenn Jacks , Carina og Henry , en þau eru leikin af þeim Kayu Scodelario og Brenton Thwaites . Af eldri persónum sem snúa aftur má nefna hinn trygga vin Jacks , Gibbs , sem Kevin McNally leikur , Barbossa sem Geoffrey Rush leikur , Will Turner sem Orlando Bloom leikur hér á ný eftir að hafa verið fjarri góðu gamni í fjórðu myndinni og Elizabeth Swann sem Keira Knightley leikur hér einnig aftur . Ekki skemmir svo fyrir að sjálfur Sir Paul McCartney er á kreditlistanum yfir leikara í myndinni og verður gaman að sjá hvaða persónu hann leikur .
l Um leikstjórn myndarinnar sjá hinir norsku Joachim Rønning og Espen Sandberg , en þeir gerðu m . a . hina afar góðu Óskarstilnefndu mynd Kon-Tiki árið 2012 . Þess má geta að Salazar ’ s Revenge , er dýrasta mynd Pirates of the Caribbean-seríunnar , en talið er að gerð hennar hafi kostað upp undir 370 milljónir dollara .
Hinn ófrýnilegi og grimmi Salazar er leikinn af Javier Bardem .
Veistu svarið ? Grísk goðafræði kemur talsvert við sögu í Salazar ’ s Revenge því til að geta sent Salazar á ný til sinna heima þurfa Jack Sparrow og bandamenn hans að finna þríforkinn sem gríski sjávarguðinn notaði til að stjórna hafinu . Hvað heitir þessi sjávarguð ?
Í hluta myndarinnar er farið langt aftur í tímann , þegar Jack Sparrow var ungur maður og tókst á við Salazar í fyrra skiptið – og hafði sigur .
28 Myndir mánaðarins
Poseidon .