Myndir mánaðarins Apríl 2018 tbl. 291 Bíóhluti | Page 26
Önd, önd, gæs
Engin venjuleg fjölskylda
Önd, önd, gæs er glæný teiknimynd um unglingsgæsina Peng
sem heldur að hann sé snjallasta gæsin í gæsahópnum og
þurfi ekkert að æfa sig fyrir haustferðina suður á bóginn.
Þetta viðhorf á eftir að koma honum í koll ... en þó með þeim
óvæntu afleiðingum að hann eignast tvo fósturunga!
Það skemmtilegasta sem Peng gerir er að fljúga um loftin blá á
miklum hraða og taka alls konar áhættu. Hann á hins vegar erfitt
með að fylgja reglum og halda aga og er af þeim sökum t.d.
óhæfur til að fara fremstur í oddafluginu sem gæsir nota til að
komast lengra og fljúga léttara þegar