Kiwanisraffréttir November 2012 | Page 11

kallaður, Braga Stefánsson, Ástbjörn Egilsson, Sigurð Pétursson og Björn Ágúst Sigurjónsson. Þetta voru klettarnir. Svo vil ég nefna Eldeyjarmenn þeir buðu okkur strax hús sitt til afnota og kom það sér afskaplega vel fyrir nýjan klúbb.

En mikið vatn er runnið til sjávar síðan og held ég að tilkoma kvenna í hreyfinguna hafi í raun verið jákvæð. Ýmsar áherslubreytingar urðu í tímans rás, við hættum að fá bréf þar sem við vorum titlaðar hr. forseti, hr. ritari og svo framvegis. Við komum með aðeins öðruvísi áherslur inn í sambandi við líknarmál og tókum við kannski meira á mjúku málunum, við studdum t.d. við fyrstu konuna sem fór í hjartaígræðslu til London, sátum mörg kvöld og saumuðum kanínur og klæddum í hin ýmsu föt og færðum kvennaathvarfinu, gáfum mjaltavélar á fæðingardeildina og studdum vel við Barnaspítalann. Það var frekar fátt sem okkur var óviðkom-andi þegar börn voru nefnd og er svo enn í dag.

Í upphafi var ekki erfitt að fá konur til liðs við okkur við náðum alltaf að halda tölunni 25 þó svo að einhverjar gengu úr hreyfingunni. Þegar ég byrjaði að skrifa þessa grein, fletti ég upp í gömlum greinum sem ég hafði skrifað og í kringum 90-91 sé ég að ég er orðin svo bjartsýn að ég tel að fljótlega verði konur 200. Við vorum á þessum árum að stofna nýja klúbba, þá urðu Rósan, Góa, Embla, Korpa og Sólborg til. En því miður hef ég ekki orðið sannspá. Harpa lagði upp laupana vegna þess að ekki tókst að endurnýja í klúbbnum og var aldurinn orðinn ansi hár og mjög erfitt að reyndist að fá ungar konur í hópinn. Góa átti einngi erfitt á þessum árum og gengu til liðs við Hörpuna, en allt kom fyrir ekki – og enduðum við Hörpurnar á að ganga til liðs við Sólborgu. Korpa lagði líka fljótt upp laupana og aðeins 1 kona úr þeirra hópi hélt áfram, Hjördís okkar, verð-andi umdæmisstjóri. Emblan og Rósan lifa enn og hafa svo sem ekki verið stórir, en í þeim klúbbum eru flottar konur sem skilað hafa góðu og miklu starfi innan hreyfingarinnar.

Eftir 23 ára starf kvenna í Kiwanishreyf-ingunni er loksins komið að því að kona verði umdæmisstjóri og er ég virklega stolt af því. Vonandi kemur sá dagur að almenningur í landinu veit að Kiwanis er jafnt fyrir konur sem karla en þar hefur vantað mikið á.

Ég hef stiklað á stóru um upphaf kvenna í Kiwanishreyfingunni. Hægt væri að halda miklu lengra erindi um efnið og breiðu bökin sem við urðum að hafa, en það skal viður-kennast hér, að ég sé ekki eftir einni einustu mínútu sem ég hef eytt í Kiwanis því að maður fær allar þessar mínútur til baka í ein-hverri mynd, og ég tala nú ekki um alla vinina sem ég hef eignast.

upp laupana, en ein kona úr þeirra hópi hélt áfram, Hjördís okkar, verðandi umdæmis-stjóri. Emblan og Rósan lifa enn og hafa svo sem ekki verið stórir, en í þeim klúbbum eru flottar konur sem skilað hafa góðu og miklu starfi innan hreyfingarinnar.

Eftir 23 ára starf kvenna í Kiwanishreyf-ingunni er loksins komið að því að kona verði umdæmisstjóri og er ég virklega stolt af því. Vonandi kemur sá dagur að almenn-ingur í landinu veit að Kiwanis er jafnt fyrir konur sem karla en þar hefur ávantað

Ég hef stiklað á stóru um upphaf kvenna í Kiwanishreyfingunni. Hægt væri að halda miklu lengra erindi um efnið og breiðu bökin sem við urðum að hafa, en það skal viður-kennast hér, að ég sé ekki eftir einni einustu mínútu sem ég hef eytt í Kiwanis því að maður fær allar þessar mínútur til baka í ein-hverri mynd, og ég tala nú ekki um alla vinina sem ég hef eignast.