Magnús Árni Gunnlaugsson, starfsmaður Norðuráls:
Enginn er svikinn af VIRK
ir á örorku í það stand að það geti unnið – sé það mögulegt.
Það er andlega og félagslega mikill plús ef það tekst – að
ekki sé talað um hve miklu það skiptir fyrir þjóðfélagið.“
Skipti aðstoð VIRK miklu?
„Já, mér finnst hún hafa skipt mjög miklu. Hún varð mér
sterk hvatning og svo fékk ég svo margar góðar ábending
ar, hvernig á að snúa sér í málum gagnvart kerfinu. Þar
þekk r fólk yfirleitt ekki vel til, nema að það komist í svona
i
aðstæður eins og ég gerði í kjölfar slyssins. Ég vissi lítið
um hvaða rétt ætti í þessu eða hinu. Nú er ég reynslunni
ríkari.“
Magnús Árni Gunnlaugsson. (Mynd: Skessuhorn)
„Mér var bent á að fara í samstarf við VIRK af Vil
hjálmi Birgissyni formanni Verkalýðsfélags Akraness
og sjúkraþjálfaranum mínum, Georgi Janussyni,“ segir
Magnús Árni Gunnlaugsson sem var sjómaður en starf
ar nú hjá Norðuráli.
„Ég hafði verið talsverðan tíma hjá sjúkraþjálfaranum veg
na afleiðinga sjóslyss sem ég lenti í árið 2011,“ segir Magnús
Árni Gunnlaugsson. „Bátur sem ég var á sökk við Akurey.
Við vorum tveir á bátnum og björguðumst báðir. Ég hékk
á hægri hendinni þegar báturinn fór hringinn í sjónum og
tognaði illa á öxl og handlegg í þeim atgangi. Þetta var í
mars og sjórinn kaldur, innan við tvær gráður. Við vorum
í sjónum í 25 mínútur, þá kom björgunar veitin Ársæll og
s
tók okkur upp í gúmmíbát. Við hefðum dáið hefði ég ekki
hangið á bátnum.
Eftir þetta sjóslys varð ég afskaplega slæmur í öxlinni og
handleggnum. Og verkurinn versnaði er frá leið. Ég fór
til ráðgjafa VIRK hjá Verkalýðsfélagi Akraness. Ráðgjafi
VIRK benti mér á ýmsa möguleika og hafði samband við
Norðurál, atvinnurekanda minn, til þess að halda því opnu
að ég gæti síðar byrjað að vinna eftir getu.
Ég sótti um endurhæfingarlífeyri að uppástungu ráðgjafa
VIRK og fékk hann. Það var mikil hjálp. Ég fékk lífeyri í
nokkra mánuði og var í meðferð hjá sjúkraþjálfaranum
mínum einu sinni í viku. Smám saman fór ég heldur að lag
ast en það vantar mikið upp á það enn að ég sé jafngóður.
Viðtölin við ráðgjafann og sú aðstoð sem hann veitti og
sjúkraþjálfunin var mér mikil hvatning til þess að hefja
störf að nýju sem fyrst.
Hvernig gengur þér að vinna núna?
„Það gengur sæmilega nema hvað ég er oft illa haldinn af
verkjum. Það voru teknar myndir af skaðanum og í ljós
kom að það gæti þurft að gera á mér aðgerð. En ég er að
draga það, athuga hvort þetta lagast ekki smám saman.
Ég vona að svo verði. En vissulega mun ég fara í aðgerð ef
niðurstaðan verður sú að ég þurfi þess.“
Ertu enn í sambandi við VIRK?
„Nei, ekki lengur. Eftir sjóslysið fékk ég áfallahjálp hjá
sálfræðingi. Ég fór með félaga mínum í eitt skipti til sál
fræðingsins, en honum fannst ég vera í góðum málum. Ég
var ekki talin þurfa á frekari sálfræðiaðstoð að halda.
Eftir sjóslysið hafði ég farið í skoðun á Landspítalanum í
Fossvogi. Þar var ég hitaður upp og fékk svo að fara heim.
Meiðslin á handleggnum komu ekki fram að ráði fyrr en
nokkru síðar og smátt og smátt ágerðust þau þar til öxlin
fraus. Eftir það varð ég óvinnufær.
Yfirmenn hjá Norðuráli hafa komið vel til móts við mig.
Ég er nú komin til vinnu og gengur ágætlega nema hvað
verkna snertir. Ég vil þakka VIRK fyrir þá góðu aðtoð
i
s
sem ég fékk. Mitt álit er að starfsemin sem þar er rek
in sé mjög uppbyggjandi fyrir þá sem lenda í erfiðum
aðstæðum. Ég hvet fólk eindregið til að nýta sér starf
semina hjá VIRK. Það er engin svikinn af þeirri aðstoð.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Allir þurfa að finna að þeir séu með í þjóðfélaginu og VIRK
veitir mikla hvatningu í þá átt. Það er ekki gaman að vera á
bótum. Það mætti gera meira í því að koma fólki sem lend
21